Uppskriftahorn Lindaskóla

Mataruppskriftir

    Fiskmeti

Fagur fiskur úr sjó Ýsa í kókos og karrý Chilli-fiskur
Austurlensk lúða Ýsugratín   

    Kjötmeti

Kjúklingabringur í ostrusósu Nautakjöt í ostrusósu Burradizz
Austurlenskur hakkréttur Satay kjúklingur Kjötkúlur
Spaghettí kjötbollur Kjúklingaréttur m/sólþ. tómötum Japanskur kjúklingaréttur
Rauður kjúklingur Saltkjöt og baunir Grænmetis og grísagleði 
Indverskur matur  Doritos kjúklingur  Ragnar Reykás
Kalkúnabringur / Villisveppasósa / Kartöflubátar

    Súpur og pasta

Pepperoni-pasta Mexíkósúpa m/kjúklingi Mexicó-súpa
Grænmetissúpa Súpuskálar Haustsúpa
Fiskisúpa Verðlaunapastaréttur Tortellini pastaréttur

 

Ýmislegt

Sælkerasalat Karrý pastasalat Spariskyr Tígra
Mjólkurhristingur Spariávaxtasalat  Morgunkorn
Skinkurúllur Beikonrúllur Kókosbolludúndur
Árshátíðar-bomba "Rauða sultan"  Hawaiian-salat
Ávaxtadrykkur Litlar veislupizzur   

 

Bakstur

    Brauðmeti

Múslíbollur Grófar bollur m/kotasælu Grófar bollur
Mexikanskar pönnukökur Pönnubrauð Sólgrjónabrauð
Ostastangir Stafabrauð Nan-brauð
Grallarabrauð Brauðbangsar Kleinur
Brauðkringlur Fléttubrauð Sumarbollur
Bananabrauð Gersnúðar Kryddbrauð
Amerískar pönnukökur Ítalskt brauð Brauðvafningar
Langbrauð m/osti Matarbollur Horn
Lítil fléttubrauð    

    Sætmeti

Tebollur Eplakaka / muffins Formkaka m/súkkulaðibitum
Trallakökur Kókosgaldrakúlur Muffins
Sörur Eplakaka Súkkulaðikaka
Vatnsdeigsbollur Frönsk súkkulaðikaka Rúlluterta
Kryddkaka Eplakaka m/marsipani Veislu marengsterta
Sparikökur 250 $ súkkulaðibitakökur Marmarakaka
Kornflögumarengs Súkkulaðismákökur Bananamúffur m/súkkulaði
Bóndakökur Súkkulaðiterta Karlottu  

Karrý pastasalat (boðið á foreldranámskeiði)

 

Sósa:

1 dl majónes
½ dl sýrður rjómi
3 msk sítrónusafi
1-2 tsk karrý (smakka til)
1 stk hvítlauksrif (má vera meira)
1 tsk hunang
½ tsk salt

 

Majones og sýrður rjómi hrært út í skál og svo er öllu hinu bætt út í.

 

 

Salat:

500 gr rækjur
6 dl pasta (soðið og kælt)
1 ½dl saxað sellerí
lítil dós ananaskurl (smá safi)
3 msk saxaður blaðlaukur
1 tsk steinselja söxuð
3-5 msk    skinka 

 

 

 

 

Sælkerasalat (boðið á foreldranámskeiði)

Hráefni

1 pakki krydduð hrísgrjón td. Batchelors
200 gr skinka, skorin í bita
2 stk gul epli, skorin í bita
1 dl relish eða sýrðar gúrkur
1  stk rauð paprika, skorin í bita
200gr rækjur (má sleppa)
½ - 1 stk mexico eða hvítlauksostur (má sleppa)

 

Sósa

2-3 msk majones
1 dós sýrður rjómi
½ - 1 stk laukur, smátt saxaður
¼ búnt steinselja, söxuð
¼ búnt grænt dill, saxað
¼ tsk cayenna pipar

 

 

 

 

Aðferð

 

1. Sjóðið hrísgrjónin ásamt 2 nautateningum og kælið.

2. Hrærið saman majones, sýrðan rjóma, lauk, steinselju, dill og pipar

3. Bætið rækjum, hrísgrjónum, skinku, eplum, sýrðum gúrkum og papriku við sósuna  og blandið saman.

4. Passar vel að skreyta með eggjum og ferskri steinselju.

 

Múslíbollur (6.-8.bekkur)
 

3dl volgt vatn
3 tsk þurrger
4 msk olía
2 tsk púðursykur
1 dl múslí
2 msk skyr
5-6 dl hveiti
1/2 tsk salt
1 tsk kanill (má sleppa)
1. Setjið vökvann ásamt þurrgeri í skál
2. Bætið við matarolíu, salti, sykri og skyri
3. Blandið þurrefnunum saman við en munið að geyma 1 dl af hveitinu
4. Látið deigið lyfta sér
5. Hnoðið deigið þangað til það er laust frá hendi og borði
6. Mótið bollur úr deiginu og raðið á plötu
7. Pennslið með vatni eða mjólk, dreifið sesamfræi yfir og látið bollurnar lyfta sér
8. Bakið í miðjum ofni við 225°C í 15 mín.

 

Tebollur (3.-6.bekkur)
 

4  1/ 2 dl  hveiti
125 g mjúkt smjörlíki
1 dl    sykur
2 tsk lyftiduft
2 stk egg
3 msk  mjólk
1 dl súkkulaði
½  tsk vanilludropar

 

 

1.      Mælið allt í hrærivélaskál.

2.       Hrærið allt saman.

3.       Setjið deigið með tveim teskeiðum á bökunarpappír á plötu.

4.       Bakið í 20 mín við 200°C.

 

Eplakaka / muffins  

200 gr smjörlíki
2 dl sykur
2  egg
4 dl hveiti
1 tsk lyftiduft
1 rifið epli 
2 tsk kanill

 

Hrærið saman sykri og smjörlíki, bætið eggjunum útí og hrærið vel.  Rífið eplið og setjið saman við ásamt þurrefnunum, hrærið saman.

Bakist við 175 – 200 °c í 35- 40 mínútur.

 

 

 

Kjúklingabringur í ostrusósu ( Fyrir 4 )

4 kjúklingabringur
2 msk olía
1/3 hluti blaðlaukur
1 meðalstór rauðlaukur
1 dós vatnahnetur
1 dós babymais
½ agúrka
1 ½ dl ostrusósa
3 dl vatn
4 tsk sykur
¼ tsk pipar
1 tsk grænmetiskraftur
3 msk sósujafnari eða 4 tsk maismjöl hrært út í örlitlu vatni

 

Aðferð:

  1. Skerið laukinn í báta og blaðlaukinn í strimla.
  2. Mælið sykur og pipar og grænmetiskraft í skál.
  3. Mælið ostrusósu og vatn í skál.
  4. Grófsaxið gúrkuna og setjið í skál.
  5. Skerið bjúklingabringurnar í bita og steikið í olíunni á djúpri pönnu.
  6. Brúnaðir bitarnir eru settir í skál og geymdir.
  7. Hitið laukinn í olíunni á pönnunni og bætið púrrulauknum við, þetta á ekki að steikjast,bara hitna aðeins.
  8. Takið grænmetið af pönnunni og geymið.
  9. Hellið sósunni og kryddinu á pönnuna og látið suðuna koma upp.
  10. Bætið þá kjúklingabitunum á pönnuna og látið malla við vægan hita í um 5 mín.
  11. Þykkið sósuna með sósujafnaranum og bætið svo öllu grænmetinu við. Látið malla í um 5 mín.

 Berið fram með grjónum.

 

 

Nautakjöt í ostrusósu ( Fyrir 4 )

4oo g nautagúllas
½ blaðlaukur
1 rauðlaukur
½ paprika
2 gulrætur
3 dl ostrusósa
4 dl vatn
4 tsk sykur
½ tsk salt
¼ tsk pipar
1 tsk kjötkraftur
3 msk sósujafnari eða 5 tsk maismjöl hrært út í örlitlu vatni
1 lítill haus kínakál

 

Aðferð:  

  1. Skerið laukinn og blaðlaukinn í aflangar ræmur og setjið í skál.
  2. Skerið paprikuna í strimla og setjið í skál.
  3. Hreinsið gulrótina og skerið í aflanga strimla og setjið í skál.
  4. Mælið ostrusósu,vatn,sykur,salt,pipar og kjötkraft í skál og hafið tilbúið.
  5. Skerið kínakálið í langa strimla og hafið tilbúið í skál.
  6. Skerið kjötið í litla þunna bita og hraðsteikið í vel heitri olíu á djúpri pönnu.
  7. Brúnað kjötið er lagt til hliðar og geymt.
  8. Setjið lauk,gulrætur og púrrulauk á pönnuna og steikið örstutta stund. Þetta á ekki að brúnast,bara hitna vel á pönnunni.
  9. Bætið paprikunni og kínakálinu við.
  10. Færið á diskinn með kjötinu.
  11. Hellið ostrusósunni,vatni og kryddinu og látið suðuna koma upp.
  12. Þykkið löginn með sósujafnaranum þangað til þetta er eins og þunn sósa.
  13. Hellið nú grænmetinu og kjötinu á pönnuna og hrærið vel.
  14. Hækkið á hæsta hita, hitið vel og berið síðan fram með hrísgrjónum.
  15. Gaman að borða þennan rétt með prjónum.

 

 

Fagur fiskur úr sjó (fyrir 4)

Hráefni:
1 laukur
2 msk olía
½ græn paprika
½ rauð paprika
600 -800 g ýsa ( roð- og beinlaus )  

Sósan:
1 ½ dl tómatsósa
2 dl vatn
2 tsk basil
1 tsk grænmetiskraftur
½ tsk salt

 

Aðferð:

  1. Hreinsið og skerið laukinn smátt.
  2. Hreinsið og skerið paprikuna í litla bita.
  3. Skerið fiskinn í litla bita
  4. Blandið saman í skál: tómatsósu, vatni,basil,grænmetiskrafti og salti.
  5. Hitið olíuna á pönnu og látið laukinn krauma við lágan hita þar til hann er glær.
  6. Hellið nú sósunni úr skálinni á pönnuna og hrærið í, látið suðuna koma upp.
  7. Bætið fiskinum og paprikunni á pönnuna og látið krauma í í 3 – 5 mín.
  8. Tilvalið er að bera þennan rétt fram á pönnunni og hafa salat, kartöflur, hrísgrjón eða bollur með.

 

 

Grófar bollur með kotasælu

1 dl heitt vatn
1 dl mjólk
1 msk þurrger
2 msk olía
¼ tsk salt
½ tsk púðursykur
½ dl hveitiklíð
1 dl heilhveiti
3 dl hveiti
3 msk kotasæla

 

  1. blandið öllu saman í skál. Hrærið með sleif og látið deigið lyfta sér í 15 mín.
  2. Hnoðið deigið og búið til lengju, skerið í jafna parta og mótið bollur.
  3. Setjið á plötu og bakið við 200 gráður og blástur í um 15 mín.

 

 

Burradizz

Sex fylltar mexikanskar pönnukökur

Ofnhiti 210 gráður og blástur  

200 g nautahakk
3 hvítlauksrif
5 msk baunamauk úr dós ( refried beans )
1 ½ msk burrito kryddblanda
½ tsk grænmetiskraftur
1 ½ dl vatn
1 gulrót
½ paprika
6 pönnukökur
1/6 hluti kínakálshaus
1 ½  dl rifinn ostur

 

  1. Takið utan af hvílauksrifjunum og pressið í hvítlaukspressu og setjið í skál.
  2. Hreinsið gulrótina, rífið gróft niður og setjið í skál.
  3. Saxið paprikuna smátt og setjið hjá gulrótinni.
  4. Mælið vatnið,kryddblöndu og grænmetiskraft og setjið í skál.
  5. Saxið kínakálið og takið til pönnukökur og rifinn ost.
  6. Hitið pönnu á hæsta hita þar til hún er vel heit.
  7. Brúnið hakkið á pönnunni og bætið hvítlauknum við þegar hakkið er nærri tilbúið.
  8. Hrærið vel í stutta stund.
  9. Lækkið hitann um helming og bætið kryddblöndu,vatni,grænmetiskrafti,baunamauki,gulrót og paprikunni saman við og hrærið vel.
  10. Leyfið þessu nú að malla í fimm mínútur á mjög lágum hita og passið að hræra vel í á meðan.
  11. Setjið tvær fullar skeiðar af hakkblöndu á hverja pönnuköku, örlítið af káli og svo rifinn ost ofan á það.
  12. Rúllið pönnukökunum upp og raðið í eldfast mót, setjið restina af rifna ostinum yfir rúllurnar.
  13. Hitið í ofni í sex mínútur og berið fram heitt með salsasósu,sýrðum rjóma og fersku salati.

 

Mexikanskar hveitipönnukökur

6 ½ dl hveiti
½ tsk lyftiduft
¼ tsk salt
3 msk olía
2 dl volgt vatn

 

  1. Blandið öllu saman í skál og hnoðið fyrst með sleif og svo með höndunum þangað til deigið verður slétt og eins að teygja sé í því.
  2. Skiptið í tvo hluta og svo aftur hverjum hluta í þrennt þannig að þið séuð með sex álíka stóra bita.
  3. Fletjið út í kringlóttar kökur .
  4. Hitið pönnu með viðloðunarfríum botni á meðalhita.
  5. Bakið pönnukökurnar í 45 sekúndur til eina mínútu á hvorri hlið eða þangað til bólur byrja að myndast á þeim.
  6. Leggið kökurnar á hreint viskastykki og breiðið vel yfir svo þær harðni ekki.
  7. Geymið í vel lofttæmdum plastpoka ef ekki á að nota þær strax.

 

Austurlenskur hakkréttur (fyrir 6)

500 g nautahakk
4 hvítlauksrif
1 laukur
3 cm bútur ferskt engifer
½ paprika
2 gulrætur
¼ hluti kínakál eða hvítkál
2 msk sæt chillisósa
8 msk soyasósa
4 dl vatn
3 tsk grænmetiskraftur
1 tsk salt

 

 

  1. Takið ysta lagið af hvítlauknum og merjið í pressu og setjið í skál.
  2. Takið ysta lagið af engifernum og skerið í mjög litla bita og bætið í skálina með hvítlauknum.
  3. Skerið paprikuna í litla bita og setjið í skál
  4. Skerið laukinn í strimla og setjið í skál.
  5. Hreinsið gulrótina og setjið í skál með lauknum.
  6. Skolið og grófsaxið kínakálið og setjið í skál.
  7. Mælið sósur, vatn,kraft og salt í skál og hafið tilbúið.
  8. Hitið pönnu og brúnið hakkið.
  9. Bætið hvítlauk og engifer á pönnuna og hrærið vel.
  10. Bætið lauknum og gulrótinni á pönnuna og hrærið áfram.
  11. Setjið kínakálið,paprikuna,sósurnar og allt kryddið á pönnuna og hrærið vel.
  12. Látið sjóða við mjög vægan hita í 5 mínútur.
  13. Borið fram með hrísgrjónum.

 

Formkaka m/súkkulaðibitum

200 g smjörlíki
3 dl sykur
3 egg
6 ½ dl hveiti
2 ¼ tsk lyftiduft
2 tsl vanilludropar
1 ¼ dl mjólk
1 ½ dl dökkt súkkulaðikurl 
eða saxað suðusúkkulaði

 

Aðferð:  

  1. Hitið ofninn í 180 °og blástur
  2. Hrærið smjörlíki og sykur saman með rafmagnsþeytara þar til blandan er létt og ljósgul.
  3. Bætið eggjunum í, einu í senn og hrærið vel á milli.
  4. Mælið allt í skálina og blandið svo vel saman með sleikju.
  5. Skiptið í tvö aflöng meðalstór kökuform.
  6. Bakið í miðjum ofni í 30 – 35 mín. eða þangað til prjónn kemur hreinn út þegar honum er stungið í miðjar kökurnar.

 

Satay kjúklingur

4 skinnlausar kjúklingabringur
1 paprika
2 gulrætur
1 rauðlaukur

1 lítil dós Satay sósa
1 dós kókosmjólk (400 ml)

1 tsk rautt karrýmauk
Olía til steikingar

 

Aðferð:  

  1. Hreinsið grænmetið og skerið í strimla
  2. Setjið kókosmjólkina,sataysósuna og karrýmaukið í skál og blandið saman
  3. Skerið bringurnar í strimla og steikið í olíunni.
  4. Setjið kjúkilingastrimlana í eldfast mót
  5. Svissið grænmetið í smá olíu á pönnunni og hellið síðan sósunni yfir
  6. Hellið þá öllu af pönnunni yfir kjúklingastrimlana og setjið í 200 ° heitan ofn í um 15 mín.

Berið fram með hrísgrjónum, salati og brauði.

 

Pönnubrauð

2 dl heitt vatn
3 dl mjólk
5 tsk þurrger
10 dl hveiti
2 dl klíð
4 msk olía
½ tsk salt
2 tsk sykur

 

Aðferð:

 

1.      Setjið allt í skál og hrærið saman
2.     
Látið lyfta sér á hlýjum stað í um 20 mín
3.     
Hnoðið deigið á borði
4.     
Búið til lengju og skerið síðan í mátulega stórar bollu
5.     
Takið gamla pönnu og smyrjið smá olíu í botninn svo það festist síður við hana
6.     
Raðið bollunum á pönnuna
7.     
Penslið með eggi og setjið korn ofan á eða penslið með hvítlauksolíu
8.     
Setjið síðan pönnuna inn í ofn og bakið við 200 °og blástur í um 30 mín.

 

Kornflögumarengs

Kaka

4 eggjahvítur
2 ¼ dl sykur
1 tsk lyftiduft
5 ½ dl kornflögur

Krem ofan á kökuna

100 gr suðusúkkulaði
2 eggjarauður
1 dl óþeyttur rjómi

   

 

 

Aðferð kaka

  1. Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið sykri síðan hægt og rólega út í og haldið áfram að þeyta blönduna þar til hægt er að hvolfa skálinni án þessa að eggjamassinn hreyfist.
  2. Blandið lyftidufti og kornflögum varlega saman við með sleikju
  3. Skiptið deiginu á tvær plötur með bökunarpappír á og gerið hringi.
  4. Bakið í um 1 klst við 120 °og blástur
  5. Kælið botnana
  6. Þeytið 3 dl af rjóma og setjið á milli botnanna ( einnig er gott að setja ávexti )

Aðferð krem ofan á köku

  1. Þeytið vel saman eggjarauður og rjóma
  2. Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði
  3. Takið pottinn af hitanum um leið og súkkulaðið er bráðnað
  4. Blandið bræddu súkkulaðinu saman við rjóma og eggjablönduna og þeytið vel
  5. Hellið súkkulaðikreminu yfir kökuna og látið leka niður af brúnunum

 Gott er að láta kökuna standa í kæli í nokkrar klst áður en hún er borðuð

 

 

Ýsa í kókos og karrý

Ofnhiti 200 °c / blástur

800 g ýsa roð og beinlaus
1 laukur

3 – 4 dl kínagrænmetisblanda 
( má vera frosin )
1 dós kókosmjólk
4 tsk grænt karrýmauk
1 tsk salt

 

Aðferð:

  1. Skerið ýsuna í litla bita.
  2. Grófsaxið laukinn.
  3. Raðið ýsubitunum í eldfast mót og stráið saltinu yfir.
  4. Dreifið kínagrænmetinu og lauknum yfir fiskinn í mótinu.
  5. Hrærið kókosmjólk og karrýmauki saman í skál og hellið yfir fiskinn í mótinu.
  6. Bakið í miðjum ofni í 18 – 20 mín.
  7. Berið fram með soðnum hrísgrjónum.

 

Ostastangir

Ofnhiti 225°c / blástur

5 dl hveiti
½ tsk sykur
1 tsk salt
2 msk matarolía
3 tsk þurrger
1 dl rifinn ostur
1 msk rifinn parmesanostur
2 ¼ dl volgt vatn

 

Aðferð:

  1. Mælið fyrst öll þurrefni  og ger í skál.
  2. Geymið ostinn.
  3. Bætið olíu og vatni saman við og passið vel að vatnið sé hæfilega heitt.
  4. Hnoðið saman fyrst með sleif og svo á borði.
  5. Fletjið frekar þykkt út og dreifið ostinum yfir.
  6. Hnoðið létt saman þangað til osturinn hefur samlagast deiginu.
  7. Skiptið í tvo jafnstóra hluta.
  8. Skiptið hverjum hluta í átta hluta og rúllið út í mjög mjóar aflangar stangir ( fingurþykkt ) og raðið á bökunarplötu.
  9. Penslið með þeyttu eggi eða olíu og hvítlaukskryddi.
  10. Bakið í um 6 – 8 mín eða þangað til stangirnar verða gullinbrúnar og stökkar.

 

 

 

   

Stafabrauð   (1. bekkur)

2 ½  tsk þurrger
2 
½ dl volgt vatn
1 msk hunang eða púðusykur
½  tsk salt
¼ dl matarolía
½ dl sesamfræ
3 
dl hveiti
3
dl heilhveiti
½   dl hveiti til að hnoða

Aðferð:  

  1. Allt mælt í skál og hrært saman.
  2. Deigið hnoðað á borði, þar til það verður sprungulaust.
  3. Móta stafinn sinn, bollur eða brauð úr deiginu og sett á bökunarplötu.
  4. Látið lyftast í 15 mínútur
  5. Hægt að pensla með eggi og setja sesamfræ eða birkifræ ofan á, áður en sett er inn í ofn og bakað við 225 gráður í 10 – 15 mínútur.

 

Spariskyr Tígra   (1. bekkur)

1 dolla skyr ( óhrært )

Ávextir að vild t.d. vínber, jarðaber, bláber, kíwí, bananar.

 

Aðferð:  

  1. Skyr er hrært með mjólk og sykri
  2. Ávextir skornir niður.
  3. Skyr sett í skál og ávöxtum dreift yfir skyrið.

 

 

Ávaxtadrykkur   (1.– 3. bekkur)

2 dl ananassafi
2 dl appelsínusafi
1 msk sítrónusafi
1 appelsína
Vínber að vild

 

Aðferð:  

1.      Ananassafa, appelsínusafa og sítrónusafa er blandað saman í skál.
2.     
Appelsína og vínber eru skoluð og skorin niður í bita.
3.     
Ávöxtunum er blandað við safann og hrært saman við
4.     
Klaki settur að lokum saman við drykkinn.

 

 

Mjólkurhristingur ( Shake )  (1.– 4. bekkur)

Súkkulaðidrykkur

1 ½ dl mjólk
1 tsk súkkulaðibúðingsduft (búðingur frá Royal)
1 tsk kakómalt
4 msk vanilluís

Jarðaberjadrykkur  

2 dl mjólk
2 msk jarðaberjaíssósa
4 msk vanilluís

 

Aðferð:  

Öllu er blandað saman í skál og hrært saman með þeytara ( handpískara)

 

 

Spariávaxtasalat með súkkulaðirjóma    (1. bekkur)

(fyrir 8 )

2 epli
2 appelsínur
2 bananar
4 kíwí
Vínber að vild
Jarðaber að vild
1 peli rjómi
2 dl Súkkulaðispænir (má setja minna eða meira að vild)

 

Aðferð:  

  1. Allir ávextir eru skolaðir og hreinsaðir.
  2. Ávextirnir eru skornir niður í hæfilega bita og settir í skál og blandaðir saman.
  3. Rjómi er þeyttur og súkkulaðispænir hrærður varlega saman við.

Ávextirnir eru síðan settir í skál og rjóminn hafður með til hliðar. Einnig er hægt að að blanda ávöxtum og rjóma saman strax.

 

 

Trallakökur   (1. og 3. bekkur+Dægradvöl)

2 ½ dl haframjöl
1 ½ dl hveiti
1 dl púðusykur
100 gr smjörlíki
½ tsk lyftiduft
1 egg

 

Aðferð:  

  1. Öllu hráefninu er blandað saman í skál og hnoðað í stóra kúlu.
  2. Síðan eru búnar til litlar kúlur úr deiginu  og settar á bökunarpappír á plötu.
  3. Bakað við 180° í 12- 15 mínútur.

 

 

Grófar bollur   (2.– 4. bekkur)

1 dl heitt vatn
1 dl mjólk
3 tsk þurrger
2 msk matarolía
¼ tsk salt
½ tsk púðursykur
½ dl hveitiklíð
1 dl heilhveiti
3 dl hveiti

 

Aðferð: 

  1. Blanda saman vatni, mjólk og þurrgeri í skál og látið leysast upp í 5 mín.
  2. Bæta við matarolíu, púðusykri og salti saman við gerblönduna
  3. Blanda saman hveitiklíð, heilhveiti og hveiti við vökvablönduna
  4. Deigið hnoðað og bollur mótaðar.
  5. Sett á bökunarplötu og látið lyfta sér í 15 – 20 mín.
  6. Bollurnar bakaðar við 225° í 15 mín

Gott er að pensla bollurnar með mjólk og setja sesamfræ eða birkifræ ofan á, áður en þær eru bakaðar.

 

 

Grallarabrauð  (2. bekkur)

3 dl hveiti
1 dl hveitiklíð
½ tsk lyftiduft
½ tsk salt
1 tsk sykur
1 ½ dl mjólk

 

Aðferð:  

  1. Allt hráefni er blandað saman í skál.
  2. Deigið er hnoðað vel saman ( má vera hálf blautt)
  3. Móta brauð á plötu, pensla með mjólk og birkifræum.
  4. Bakað í ofni við 200 ° í 20 – 25 mínútur.

 

 

Kókósgaldrakúlur  (1. – 3. bekkur + Dægradvöl)

75 gr smjörlíki ( mjúkt)
2 msk kakó
2 ½ dl haframjöl
1 dl sykur
½ vanillusykur

 

Aðferð:  

  1. Öllu er blandað saman í skál og hnoðað saman.
  2. Litlar kúlur er búnar til og velt upp úr kókosmjöli.
  3. Sett á plötu og í kæli í 20 – 30 mín

 

Brauðbangsar  (2. bekkur)

1 ¼ dl heitt vatn
1 ¼ dl mjólk
3 tsk þurrger
1 ½ msk matarolía
¾ dl hveitiklíð
1 ½ dl heilhveiti
3 ½ dl hveiti
½ tsk salt
1 tsk púðusykur

 

Aðferð:  

  1. Vatni, mjólk og þurrgeri er blandað saman í skál og látið leysast upp í 5 mín.
  2. Þurrefnum og matarolíu er blandað saman við.
  3. Hnoðað og bangsar, eða aðrar fígúrur búnar til úr deiginu
  4. Látið lyfta sér í 15 mín.
  5. Bakað við 200 ° í 15 – 20 mín eða þar til brauðið er bakað.

 

 

Muffins   (1.–4. bekkur + Dægradvöl)

½ dl matarolía
1 dl sykur
1 egg
3 dl hveiti
2 tsk lyftiduft
1 dl mjólk
1 tsk vanilludropar
1 dl saxað súkkulaði eða súkkulaðispænir

 

 

Aðferð:  

  1. Olía, sykur og egg sett saman í skál og hrært saman þar til blandan verður ljós og létt.
  2. Mjólk, vanilludropum, hveiti og lyftidufti er blandað saman við og hrært vel.
  3. Súkkulaði bætt við að lokum og hrært varlega saman með sleif.
  4. Deigið er sett í muffinsform með tveimur teskeiðum og passa ð formin verði bara hálffull.
  5. Kökurnar eru bakaðar neðarlega í ofni við 175° í 15 mínútur.

 

Brauðkringlur  (3. bekkur)

2 msk þurrger
2 ½ dl volgt vatn
2 tsk hunang
6 dl hveiti
1 tsk salt

 

Aðferð:  

  1. Vatn, þurrger og hunang er sett saman í skál og leyst upp í 5 mínútur
  2. Hveiti og salti er síðan blandað saman við.
  3. Deigið hnoðað og rúllað upp í lengju.
  4. Lengjunni er síðan skipt í 4- 6 hluta
  5. Hverjum deighluta er síðan rúllað upp í lengju og kringlur mótaðar.
  6. Mjólk er penslað yfir kringlurnar og birki eða sesamfræjum stráð yfir.
  7. Bakað við 200 ° í 15 – 20 mín eða þar til kringlurnar eru bakaðar.

 

Súkkulaðismákökur  (2. og  4. bekkur + Dægradvöl)

100 gr smjör
1 dl flórsykur
½ dl púðusykur
1 egg
2 dl hveiti
½ tsk matarsódi
1 tsk vanilludropar
½ dl súkkulaðispænir

 

Aðferð:  

  1. Hrærið smjör og sykur ljóst og létt með rafmagnsþeytara
  2. Brjótið egg í glas og bætið því við smá saman út í deigið.
  3. Mælið þurrefnin og blandið saman við
  4. Bætið vanilludropum og súkklaðispæni við deigið og hrærið saman.
  5. Mótið kökur með tveimur teskeiðum á raðið á bökunarplötu
  6. Bakið í miðjum ofni í 10 – 12 mín við 200 °  eða þar til kökurnar eru orðnar brúnar.

 

Fléttubrauð   (4. bekkur + Dægradvöl)

1 ½ dl heilhveiti
1 dl hveiti
1 ½ tsk þurrger
¼ tsk salt
1 tsk sykur
1 ½ dl volgt vatn
¼ dl matarolía

 

Aðferð  

  1. Mælið þurrefnin í skál
  2. Mælið vatn og olíu og hrærið vel saman við deigið.
  3. Látið deigið hefast í 10 – 15 mín í skálinni.
  4. Hnoðið deigið og rúllið því upp í lengju
  5. Skiptið lengjunni í 3 hluta og rúlla hverjum og einum upp.
  6. Flétta lengjurnar saman. Pensla brauðið með vatni og gott er að setja sesamfræ eða birkifræ ofan á, áður en sett er inn í ofn.
  7. Bakið í 15 – 20 mín  við 200 °

 

 

Kjötkúlur   (4.bekkur)

200 gr kjöthakk
1 msk púrrulaukssúpa
10 stk ritskex eða annað saltkex

 

Aðferð:  

  1. Myljið saltkexið niður í skál.
  2. Mælið súpuduftið og setjið út í skálina ásamt hakkinu
  3. Hræra deigið saman.
  4. Móta kúlur og setja á bökunarpappír.
  5. Baka kúlurnar í 15 – 20 mín við 200 °

Gott er að hafa pizzusósu eða súrsæta sósu með til að dýfa bollunum í.

 

 

Sólgrjónabrauð   (4. bekkur)

1 dl haframjöl
3 dl hveiti
2 tsk púðusykur
2 tsk þurrger
1 msk sesamfræ
¼ tsk salt
1 msk matarolía
1 dl heitt vatn
1 dl mjólk

 

Aðferð:  

  1. Mælið hveiti, haframjöl, þurrger, púðusykur, sesamfræ og salt saman í skál.
  2. Mælið heitt vatn, mjólk og olíu saman í könnu.
  3. Hellið vökvanum í skálina og hrærið vel.
  4. Látið deigið lyfta sér í 10 – 15 mín.
  5. Hnoða deigið vel saman.
  6. Móta brauð, pensla með vatni og strá sesamfræjum yfir.
  7. Bakað í 15 – 20 mín við 200 °

 

 

Bananabrauð (1.bekkur)

2 þroskaðir bananar
1 egg
1 ½ dl sykur
4 msk olía
3 ½ dl hveiti
1 tsk matarsódi
1 tsk lyftiduft
1 msk vanilludropar

 

Aðferð:  

  1. Stappa saman banana og setja í skál.
  2. Önnur hráefni sett í skál og hrært saman.
  3. Deigið sett í form og bakað við 190° í 30 mínútur

 


Gersnúðar
(1.bekkur)  

Stór uppskrift

3 dl mjólk
2 dl heitt vatn
5 tsk þurrger
2 msk hunang
1 tsk salt
½ dl matarolía
¼ tsk kardimommuduft
2 dl hveitiklíð
9 dl hveiti

 

 

Aðferð:

  1. Mæla allt í skál og hræra vel saman með sleif
  2. Deigið er hnoðað og skipt í 2 hluta
  3. Deigið er rúllað út með rúllukefli í rétthyrnda köku ca 20x20 cm
  4. Penslið yfir deigið með mjólk.
  5. Stráið kanilsykri yfir deigið og rúllið því upp.
  6. Skera deigrúlluna í sneiðar og raðið á bökunarplötu.
  7. Látið lyftast í 15 mínútur.
  8. Bakið snúðana við 200° í 10 – 15 mínútur.

 

Morgunkorn (4.bekkur)

2 ½ dl haframjöl
1 dl jarðhnetur/ flögur
1 dl hveitiklíð
2 msk hunang
2 msk matarolía
½ tsk vanilludropar

 

Aðferð:  

  1. Blandið haframjöli, hnetum og hveitiklíð í skál.
  2. Blandið saman hunangi, olíu og vanilludropum saman í litla skál.
  3. Hellið vökvanum úr litlu skálinni í stóru.
  4. Blandið saman með sleif.
  5. Breiðið  blönduna á bökunarplötu og bakið í 10 – 15 mínútur við 165°.

 

Kryddbrauð (Dægradvöl)

2 dl hveiti
2 dl haframjöl
1 dl sykur
1 tsk matarsódi
½ tsk kanill
½ tsk kardimommuduft
½ tsk negull
½ tsk engifer
2 dl mjólk

 

Aðferð:  

  1. Mældu þurrefnin saman og settu í skál
  2. Mældu mjólkina og settu saman við.
  3. Hrærðu deigið saman með sleif.
  4. Settu deigið í kökuform og bakaðu í 25 mínútur við 200°.

 

Amerískar pönnukökur

 

2 dl hveiti
1 dl heilhveiti
½ tsk lyftiduft
¼ tsk matarsódi
¼ tsk salt
½ tsk sykur
1 egg
1 ½ msk matarolía
1 dl súrmjólk
1 ½ dl mjólk

3 msk matarolía, til að setja smátt og smátt á pönnuna meðan á steikingu stendur eða eftir þörfum.

 

Aðferð:

  1. Setjið allt í skál í réttri röð og hrærið svo vel með písk eða sleif þar til deigið verður kekkjalaust.
  2. Kveikið undir pönnu á miðstraum, þegar pannan er orðin heit eru búnar til litlar pönnukökur.
  3. Notið ausu til að setja deigið á pönnuna, ca tvær pönnukökur í einu á pönnuna.
  4. Þegar kökurnar eru orðnar nærri þurrar að ofan á að snúa þeim við og baka þær á hinni hliðinni.

 

Borið fram með sírópi eða osti og smjöri.

 

Sörur

3 eggjahvítur
4 dl flórsykur
4 dl heslihnetur eða möndlur  

Krem: 
100 g mjúkt smjör
1 dl flórsykur
1 eggjarauða
2 msk kakó
½ tsk instant kaffi

 

Aðferð:

Stífþeytið eggjahvítur og flórsykur,bætið síðan hnetunum í með sleikju. Setjið með teskeið á plötu og bakið í 10 – 12 mín við 180 gráður og blástur.

Þeytið smjör og flórsykur,bætið eggjarauðunni út í og síðast kakó og kaffi ( sem er leyst upp í litlu vatni ) Kælið kremið. Kremið sett á kökurnar.

150 g suðusúkkulaði brætt sem hjúpur yfir smjörkremið.

 

Pepperoni pasta (10.bekkur)

1      l.     vatn
½     tsk   salt
1      msk  matarolía
150  g      pastaskrúfur 
4     stk   sveppir
1      stk   hvítlauksrif
100  g      pepperóni
1      msk  matarolía
1      dl    matreiðslurjómi
2     msk  paprikusmurostur
1      tsk   grænmetiskraftur
1      tsk   ítalskt krydd
pipar á hnífsoddi

 

1.    Hitið vatnið að suðu og bætið þá pasta, salti og matarolíu út í pottinn.  Sjóðið í u.þ.b. 10 mín.

2.    Sneiðið sveppi og lauk og merjið hvítlauksrifið.  Skerið pepperóni í litla bita.

3.    Hitið matarolíuna á pönnu og steikið grænmeti, látið krauma  í 2 mín.

4.    Bætið matreiðslurjóma, paprikusmurosti og kryddi á pönnuna og látið krauma í 3-5 mín.

5.    Setjið pastað í skál og hellið sósunni yfir.

 

Ítalskt brauð

Tvö brauð

Ofnhiti 180 gráður og blástur

9 dl hveiti ( Kornax í bláu pokunum )
3 msk olía
½ tsk sykur
2 ½ tsk þurrger
3 ¾ dl volgt vatn

Fylling fyrir tvö brauð.

40 g smjör eða olífuolía
4 msk rifinn ostur
½ tsk hvítlaukssalt
2 hvítlauksrif marin í hvítlaukspressu
4 tsk þurrkuð steinselja

 

Aðferð:

  1. Bræðið smjörið.
  2. Blandið öllu samanvið smjörið 
    og smyrjið á brauðin eins og lýst er hér til hliðar.

 

 

Aðferð:

1 .Mælið öll þurrefni í skál.

2. Bætið vatninu og olíunni í og blandið létt saman með sleif.

3. Hnoðið vel með höndum á hveitistráðu borði. Notið hendurnar en reynið að hnoða eins litlu hveiti og hægt er saman við svo deigið verði ekki of stíft.

4. Látið lyfta sér á hlýjum stað í 30 mín.

5. Hnoðið vel aftur og skiptið í tvo hluta.

6. Fletjið út í svolítið  aflangan,þykkan ferhyrning ( A 4 ) og smyrjið fyllingunni yfir.

7. Legggið hliðarnar saman þannig að þær víxlist aðeins og loki fyllinguna inni.

8. Passið að endarnir séu vel lokaðir svo fyllingin renni ekki út í bakstri.

9. Leggið brauðin með góðu bili á milli á plötu klædda bökunarpappír.

10. Penslið með eggi og stráið rifnum osti  og steinselju ofan á

11. Látið lyfta sér á plötunni í 20 mín.

12. Bakið í miðjum ofni í 20 mín eða þangað til brauðin verða gullinbrún og heyrist tómahljóð þegar þau eru bönkuð.

 

Mexicosúpa m/kjúklingi (fyrir 6)

 
3 kjúklingabringur
½ tsk cayennepipar
¼ tsk chillikrydd
1 tsk worchestersósa
¼ tsk kóriander

1 dós niðursoðnir tómatar
2 súputeningar (nauta og kjúklinga)
5 dl vatn
5 dl tómatsafi
1 ½ stk laukur
1 hvítlauksrif
2 dl matreiðslurjómi

 

Aðferð:

  1. Mýkið laukinn og hvítlaukinn á pönnu
  2. Setjið allt hráefnið nema kjúklinginn í pott og sjóðið við vægan hita í 20 mín.
  3. Skerið kjúklinginn í litla bita og steikið á pönnu í smá olíu
  4. Setjið kjúklinginn út í súpuna og la´tið krauma við vægan hita í um 15 mín.

Hugmynd að meðlæti sem sett er út í súpuna á hvern disk.

Sýrður rjómi
Rifinn ostur
Doritos snakk og Nan brauð

 

Nan brauð

2 ½ tsk þurrger
2 dl volgt vatn
1 msk olía
172 tsk salt
½ tsk matarsódi
5 – 6 dl hveiti

 

Aðferð:

  1. Blandið saman öllu hráefninu í skál og hrærið. Passið að hræra ekki of mikið svo að deigið verði ekki seigt.
  2. Látið deigið lyfta sér á hlýjum stað í um 15 mín
  3. Hnoðið deigið á borði, rúllið út í lengju og skiptið í ca 6 bita
  4. Mótið brauðin milli handanna og hafið þau jafn þykk
  5. Pikkið brauðin með gaffli og látið þau hefast í ca 10 mín.
  6. Penslið brauðin með kryddolíu og setjið í ofninn
  7. Bakið brauðin við 200 gráður í 8 – 10 mín. eftir þykkt.

 

Eplakaka

1 dl sykur
2 dl hveiti
2 dl haframjöl
100 g brætt smjörlíki
100 g suðusúkkulaði (saxað)
4 gul epli
Kanilsykur

 

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 180 gráður og blástur
  2. Flysjið eplin og skerið í litla bita
  3. Setjið í eldfast mót og setjið saxað súkkulaðið yfir
  4. Hrærið saman þurrefnin og smjörlíkinu og stráið því yfir eplin og súkkulaðið
  5. Stráið að lokum kanilsykri yfir og setjið í ofninn
  6. Bakið í 20 – 30 mín.

 

Súkkulaðikaka (6.bekkur)

2 ½ dl hveiti
2 dl sykur
½ tsk matarsódi
½ tsk lyftiduft
½ tsk salt
2 ½ msk kakó
1 egg
1 ½ dl mjólk
¾ dl olía
1 tsk vanilludropar

 

 Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið hann á 180 gráður og blástur
  2. Allt hráefnið sett í skál og hrært saman með handþeytara ( ekki rafmagns )
  3. Setjið deigið í smurt tertuform og bakið í 20 – 25 mín.

   Súkkulaðibráð:  
1 msk brætt smjörlíki
3 msk kakó

3 dl flórsykur
3 msk heitt vatn
½ tsk vanilludropar

 

Setjið allt saman í skál og hrærið með handþeytara.Smyrjið á kökuna þegar hún er orðin köld

 

 

Spaghetti kjötbollur

Fyrir 4

350 g nautahakk
½  dl brauðrasp
¼ stk laukur
1 stk hvítlauksgeiri,saxaður
½ msk þurrkað oreganó
½ msk dijon sinnep
½ tsk þurrkað rósmarín
¼ tsk hvítur pipar
½ tsk salt
2 msk olía ( til steikingar )
½ dl rifinn parmesanostur
½ kúla mozzarellaostur
½ dós spaghettisósa að eigin vali

 

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 200 gráður
  2. Saxið laukinn og hvítlaukinn smátt
  3. Blandið saman í skál hakki, brauðraspi,sinnepi,lauk,hvítlauk og kryddi.
  4. Mótið litlar bollur úr deiginu.
  5. Setjið olíuna á pönnu og brúnið bollurnar.
  6. Raðið bollunum í eldfast mót.
  7. Skerið Mozzarellaostinn í bita og stingið milli bollanna.
  8. Hellið spagettisósu yfir bollurnar.
  9. Stráið rifna parmesanostinum yfir bollurnar.
  10. Setjið í ofninn og bakið í 20 – 30 mínútur eða þar til bollurnar eru steiktar í gegn.

Sjóðið spaghetti á meðan kjötbollurnar eru í ofninum.

 

Matarbollur

6 dl hveiti
1 ½ dl hveitiklíð
1 msk sykur
½ tsk salt
3 tsk þurrger
3 dl volg mjólk
1 msk olía
Mjólk til penslunar

 

Aðferð:  

  1. Blandið saman þurrefnunum ásamt þurrgeri ( takið frá 1 dl af hveiti til að hnoða upp í deigið á eftir )
  2. Hellið olíu og mjólkinni út í þurrefnin og hrærið með sleif.
  3. Látið deigið hefast á hlýjum stað í 20 mínútur.
  4. Hnoðið afgangshveitinu í deigið og mótið tvær lengjur.Skiptið þeim í jafna bita og mótið bollur. Setjið á plötu.
  5. Látið hefast á hlýjum stað í 10 mín.
  6. Penslið bollurnar með mjólk.
Bakið í miðjum ofni við 200 gráður í 10 – 15 mín.

 

Bananamúffur með súkkulaði

2 stk bananar
4 dl hveiti
1 tsk lyftirduft
¼ tsk salt
50 g saxað súkkulaði
½ dl olía
1 dl púðursykur
1 egg
½ tsk vanilludropar
½ dl mjólk

 

Aðferð:  

  1. Hitið ofninn í 200 gráður
  2. Stappið banana og setjið í skál ásamt olíu, púðursykri,eggi,mjólk og vanilludropum. Hrærið vel saman.
  3. Bætið hveitinu, lyftiduftinu,súkkulaðinu og saltinu saman við. Hrærið saman með sleif en passið að hræra ekki of lengi.
  4. Setjið í múffuform.
  5. Bakið í miðjum ofni í um 15 – 20 mín.
  6. Látið kólna á grind.

 

 

Litlar veislupizzur (5.bekkur)

1 ½ dl volgt vatn
2 tsk þurrger
½ tsk salt
1 msk matarolía
1 msk hveitiklíð
3 – 4 dl hveiti

Fylling:
Nokkrar msk pizzusósa
2 dl rifinn ostur
Grænmeti, t.d. tómatar,sveppir,laukur og paprika. Skinka og/eða pepperoni.

 

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á  blástur og 200 gráður.
  2. Setjið hráefnið í skál og hnoðið deigið, látið lyfta sér á hlýjum stað í 20 mín.
  3. Fletjið deigið út og búið til litlar pizzur með glasi, setjið á plötu.
  4. Setjið pizzasósu og það álegg sem þið viljið og endið á að setja rifinn ost ofan á.
  5. Bakið í ofni í um 12 – 15 mín.

 

Kjúklingaréttur m/sólþurrkuðum tómötum

6 kjúklingabringur án skinns
3 msk olía af sólþurrkuðum tómötum
Kryddað með sítrónupipar og smá salti

Kjúklingabringurnar eru steiktar á pönnu í olíunni af sólþurrkuðu tómötunum. Settar í eldfast mót.

 

Eftirfarandi er einnig steikt á pönnu í olíunni.

2 saxaðir laukar
12 sneiddir sveppir
4 sneiddar gulrætur
10 sólÞurrkaðir tómatar
3  tsk grænmetis eða kjötkraftur
2 dósir rjómaostur með sólþurrkuðum tómötum
1 peli rjómi
Smá timian, ferskt eða þurrkað

Þetta er látið krauma aðeins og hellt yfir kjúklinginn og sett í ofn í ca 30 mín við 200 gráður. Gott að setja álpappír yfir. Borið fram með grófum hrísgrjónum og góðu brauði.

 

Chilli-fiskur (6.bekkur)

Fyrir 4.

 700 – 800 g af fiski 
(Ýsa, smálúða eða þorskur, roðdreginn )

1 msk hveiti

1 tsk salt

3 dl matreiðslurjómi

½ dl sæt chillisósa

1 ½ dl rifinn ostur

 

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 225 gráður
  2. Smyrjið eldfast mót með örlítilli matarolíu
  3. Stráið hveitinu innan í mótið
  4. Skerið fiskinn í frekar smáa bita og setjið í mótið
  5. Stráið saltinu yfir fiskinn
  6. Blandið saman í skál chillisósunni og rjóma og hellið yfir fiskinn
  7. Stráið rifna ostinum yfir
  8. Bakið á næst neðstu hillu í ofninum í um 20. mín.
  9. Berið fram með kartöflum og salati og ef vill brauðvafningum.

 

Brauðvafningar (6.bekkur)

3 dl mjólk

2 dl heitt vatn

6 tsk þurrger

2 msk hunang

4 msk olía

1 dl kíð

1 tsk salt

10 – 12 dl hveiti

 

 

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á blástur og 200 gráður.
  2. Blandið saman í skál heitu vatni og mjólk.
  3. Setjið þurrgerið út í vökvann ásamt hunanginu og látið það leysast upp.
  4. Bætið þurrefnunum út í en munið að setja ekki allt hveitið í einu heldur geyma eitthvað til að hnoða upp í deigið á eftir.
  5. Látið deigið lyfta sér í 20 mín.
  6. Hnoðið deigið og skiptið deiginu í bita sem þið rúllið í ca 20 cm lengjur  og snúið þeim í vafninga.
  7. Látið vafningana lyfta sér á plötu, penslið þá með mjólk eða eggjablöndu og stráið sesamfræjum yfir. ( 15 mín.)
  8. Bakið í miðjum ofni í 12 – 15 mín.

 


"Japanskur"  kjúllaréttur  ( fyrir 6 )

4 bringur, skinnlausar.
 
1/2 bolli olía
1/4 bolli Balsamic edik
2 msk sykur
2 msk soyasósa                    
Þetta er soðið saman  í ca. 1 mín, kælt og hrært í annað slagið meðan kólnar (ef ekki hrært skilur sósan sig!).
 
1 poki núðlur (instant súpunúðlur) - ekki krydd.
möndluflögur (3-4 matskeiðar) eða eftir smekk
sesamfræ     (1-2 matskeiðar) eða eftir smekk                      
Þetta er ristað á þurri pönnu, núðlurnar brotnar í smáa bita og þær ristaðar fyrst því þær taka lengstan tíma, síðan möndlurnar og fræin.  Kælt.  (ath. núðlurnar eiga að vera stökkar).
 
Salatpoki (blandað t.d.) 
tómatar(t.d. sherry tómatar) 
1 mangó 
1 lítill rauðlaukur.
Kjúklingabringur skornar í ræmur og snöggsteiktar í olíu.  Sweet hot chillisósu hellt yfir og látið malla í smá stund.
 
Allt sett í fat eða mót.  Fyrst salatið, síðan núðlugumsið ofan á  svo balsamic blandan yfir og að síðustu er heitum kjúklingabringuræmunum dreift yfir.
 
Borðað með hvítlauksbrauði.
 
Ath. gott er að geyma eitthvað af sósunni og bera fram með réttinum.  Sósan er líka góð með brauðinu.

Skinkurúllur

Skinkusneiðar skornar í tvennt.
Aspas
Rjómaostur

 

Aðferð:

  1. Smyrjið þunnu lagi af rjómaosti á skinkusneiðarnar
  2. Setjið aspas á skinkuna og rúllið upp frá mjórri endanum.
  3. Stingið tannstöngli í rúlluna og raðið á bakka. Kælið

 

Beikonrúllur

Beikon
Samlokubrauð
Brauðostur
Epli skorið í litla bita

 

Aðferð:

  1. Skerið skorpuna af brauðsneiðunum og skerið hverja brauðsneið í tvennt.
  2. Leggið beikonsneið á bretti og setjið hálfa brauðsneið ofan á.
  3. Setjið eina ostasneið á brauðið
  4. Setjið tvo eplabita á ostinn og rúllið síðan upp frá mjórri endanum
  5. Stingið tannstöngli í rúlluna og steikið í ofni við blástur og 200 gráður í ca 20 mín.

 

Austurlensk lúða

Stórlúðusneiðar  1500 – 1800 g
4 msk púðursykur
4 msk tómatsósa
4 msk sprite
2 msk sítrónusafi
Salt og pipar
1 matreiðslurjómi

 

Aðferð:

  1. Bræðið saman púðursykur, tómatsósu, sprite og sítrónusafann á pönnu
  2. Setjið lúðuna á pönnuna og saltið og piprið.
  3. Hafið lúðusneiðarnar á pönnunni í 5 mín og snúið þá við.
  4. Hellið rjómanum yfir og sjóðið í um 15 mín. ( Fer svolítið eftir stærð sneiðanna)

Gott er að hafa hrísgrjón og ávaxtasalat með þessum rétti.

 

 

Árshátíðarmatur

   

Kalkúnabringur 

Kalkúnabringur (ferskar, 250 gr á mann)
Eðalkjúklingakrydd frá pottagöldrum

Smjör til steikingar  

  1. Steikið kalkúnabringurnar í smjöri á heitri pönnu og kryddið með kjúklingakryddinu
  1. Setjið kalkúnabringurnar í eldfast mót og steikið í ofni við 180 gráður í um klst. Fer þó eftir stærð kalkúnabringanna. Prófið bara að skera í kjötið. Passið að steikja ekki of lengi svo bringurnar verði ekki þurrar.

 

Villisveppasósa (fyrir 6)

1 pk Tasty villisveppasósugrunnur
1 msk hlynsýróp
½ líter rjómi
2 tsk grænmetiskraftur
1 dl vatn  
20 gr þurrkaðir villisveppir

  1. Leggið villisveppina í vatn í 90 mín
  2. Setjið vatn og sósugrunn í pott og hitið að suðu.
  3. Bætið grænmetiskraftinum og rjómanum út í ásamt sýrópinu.
  4. Hitið að suðu, bætið við sósulit og sósujafnara ef vill.
  5. Kreistið vatnið af sveppunum og setjið út í.

Kartöflubátar (fyrir 6)

1 ½ kg kartöflur skornar í báta
Maldon salt
Olía
Paprikuduft  

  1. Skertið kartöflurnar í báta og sett í ofnskúffu
  2. setjið salt og paprikuduft yfir
  3. hellið smá olíu yfir ( fer eftir smekk )
  4. hrærið svolítið í kartöflunum
  5. Sett í 200 gráða heitan ofn og blástur.
  6. Hitað í 45 mín.

 Einnig er gott að hafa með þessu grænmetisblöndu sem steikt er í smá smjöri og hlynsýrópi er hellt yfir og hitað.

 

 

Kókosbolludúndur

1 marengsbotn
4 kókosbollur
½ líter rjómi
100 g rjómasúkkulaði
1 askja jarðaber
1 askja bláber
1 askja rifsber  

  1. Marengsinn er mulinn í botninn á glerskál
  2. Kókosbollurnar kramdar ofan á
  3. Rjóminn þeyttur og saxað súkkulaði sett út í
  4. Sett yfir kókosbollurnar
  5. Skreytt með ávöxtunum
  6. Gott er að gera þennan eftirrétt deginum áður en á að borða hann.

 

Vatnsdeigsbollur

80 g smjörlíki 
2 dl vatn 
100 g hveiti ( 1 ¾  dl ) 
3 egg 
1/8  tsk salt

 

1.Hitið ofninn í 200 gráður. Sjóðið vatn og smjörlíki þar til smjörlíkið er  bráðið.        Bætið hveitinu út í hrærið vel í þar til deigið er laust frá sleif og potti. Stráið salti yfir og kælið í nokkrar mínútur.

2. Þeytið eggin saman og bætið þeim smám saman út í deigið, hrærið vel í á milli með rafmagnþeytara eða í hrærivél. ( Ath. Deigið má ekki vera of lint.)

3. Látið deigið á plötuna með tveimur skeiðum og góðu millibili, um 12 bollur.  

4. Bakið deigið í miðjum ofni í 20 – 30 mín. og passið að opna ekki ofninn fyrstu 15 – 20 mín. Prófið eina bollu og gangið úr skugga um að hún sé fullbökuð áður en þið takið hinar út. Einnig er hægt að gera krans úr þessu deigi í staðinn fyrir bollur. Setjið rjóma og sultu á milli eða búðing og stráið flórsykri yfir eða búið til súkkulaðibráð.

 

Saltkjöt og baunir

400 g gular baunir
( leggið þær í bleyti yfir nótt )  
2 lítrar vatn  
750 g saltkjöt  
150 g beikon  
1 laukur  
1 rauðlaukur  
400 g gulrætur, rófur, kartöflur.

 

  1. Setjið útvatnaðar baunirnar, saltkjötið,laukana,beikonið og vatnið í pott. Sjóðið í 1  ½ klst.
  2. Skerið grænmetið í bita og bætið út í vatnið og sjóðið með saltkjötinu í 20 - 30 mín.

Einnig má sjóða grænmetið sér og bera fram með .

 

Frönsk súkkulaðikaka (9.bekkur)

Kaka
15o g smjör

150 g súkkulaði ( Cote d´or 56 % )
2 dl sykur
4 eggjarauður
4 eggjahvítur
1 ½ dl hveiti

Krem
200 g Cote d´or súkkulaði 56 %
4 msk smjör
1 msk Grand Marnier ( má sleppa )
1 ½ dl möndluflögur ( má sleppa)

 

Aðferð: 

  1. Hitið ofninn í 180 gráður
  2. Stífþeytið eggjahvíturnar.
  3. Smyrjið smelluform ( 22 cm ) að innan með smjöri, stráið hveiti yfir það.
  4. Bræðið 15o g af súkkulaði, hrærið saman smjör og sykur þar til það verður létt og ljóst. Blandið eggjarauðunum saman við einni í einu og hrærið vel á milli þeirra.
  5. Blandið bræddu súkkulaðinu og hveiti saman við, blandið síðan eggjahvítunum varlega saman við.
  6. Bakið í 30 mín – 35 mín. Kælið síðan,( Kakan á að vera blaut inní.)
  7. Hitið saman smjör, súkkulaði og Grand Marnier og smyrjið því á kökuna. Fallegt er að skreyta kant kökunnar með heslihnetum.
  8. Berið kökuna fram með þeyttum rjóma.

 

Langbrauð með osti (7.bekkur)

1 dl mjólk
2 dl heitt vatn
½ dl olía
2 ½ tsk þurrger
2 msk sesamfræ
1 tsk salt
2 tsk hunang
1 tsk ítalskt krydd
2 dl heilhveiti
1 dl hveitiklíð
4 dl hveiti

 

  1. Blandið öllu saman og hnoðið
  2. Skiptið deiginu í tvennt og gerir tvær lengjur
  3. Setjið lengjurnar á plötu og penslið með eggi eða vatni
  4. Setjið rifinn ost ofan á og látið brauðin lyfta sér í 10 – 15 mín.
  5. Bakið brauðin við blástur og 200 gráður í 15 mín.

 

 

Horn (6.bekkur)

1 dl mjólk
1 dl heitt vatn
2 ½ tsk þurrger
1 tsk púðursykur
2 msk olía
½ tsk salt
1 dl hveitiklíð
4 ½ dl hveiti

 

  1. setjið vökvann ásamt þurrgeri í skál.
  2. Bætið við olíu,sykri og salti.
  3. Setjið þurrefnin í skálina en munið að geyma 1 dl af hveitinu.
  4. Látið deigið lyfta sér í 15 mín.
  5. Hnoðið deigið þangað til það er laust frá borði og hendi.
  6. Skiptið deiginu í tvo hluta.
  7. Fletjið hvorn hluta í kringlóttar kökur með kökukeflinu og skerið þá í átta hluta.
  8. Setjið ½ tsk skinkumyrju á hvern part og rúllið honum upp frá breiðari endanum og raðið á plötu.
  9. Penslið með vatni eða eggi og látið lyfta sér í 15 mín.
  10. Bakið hornin í miðjum ofni við 225 gráður í ca 10 mín.

 

Rúlluterta (7.bekkur)

2 egg 
1 dl sykur
1 ½ dl hveiti
1 ½ tsk lyftiduft
2 msk kalt vatn

Sulta, um það bil 1 – ½ dl

 

  1. Setjið bökunarpappír á plötu, og takið aðra örk til að velta kökunni á eftir baksturinn.
  2. Þeytið egg og sykur þar til hræran er létt, ljós og þykk. Notið rafmagnsþeytara
  3. Sigtið hveiti og lyftiduft. Hellið vatninu út í og hrærið deigið varlega saman með sleikju.
  4. Hellið deiginu á pappírinn á plötunni og breiðið það með sleikju þannig að það verði ferkantað og nái yfir alla plötuna
  5. Bakið í 225 gráðu heitum ofni í 7 mín.
  6. Stráið sykri á pappírinn sem á að hvolfa kökunni á.
  7. Takið pappírinn af og setjið sultu á kökuna.
  8. Rúllið kökunni upp og geymið hana í pappírnum á meðan hún kólnar.

 

 

Bóndakökur

4 dl hveiti
1 dl haframjöl
½ tsk sódaduft
100 g smjörlíki
1 dl sykur
3 msk sýróp
1 egg

 

  1. Hnoðið öllu saman.
  2. Búið til litlar kúlur og setjið á plötu.
  3. Bakið við 200 gráður í 10 mín.

 

Kleinur

500 gr hveiti
30 gr smjörlíki
150 gr sykur
3 tsk ( kúfaðar ) lyftiduft
¼ tsk matarsódi
2 egg
1 tsk kardimommuduft
2 ½ dl mjólk

 

 

Hnoðið deigið í hrærivél. Fletjið út og mótið kleinur.

Steikið upp úr Canola olíu.

 

Hawaiian-salat ( borið fram á foreldrakvöldi 22.september )

Fyrir 6 – 8 manns

1 poki pasta (hawaiian, fæst í Virku Mörkinni 3)
Kryddblanda 1 poki sem fylgir með pastanu
1 lítil olíuflaska sem fylgir með pastanu 
2 msk ólífuolía
3 kjúklingabringur, skornar í litla bita og steikt úr olíu

1 dós niðursoðnar mandarínur

1 dós ananas
1 dós mangó
1 lítill rauðlaukur
2 avacadó
2 msk hvítlauksedik ( fæst líka í Virku )

 

  1. Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum, látið undir rennandi kalt vatn og kælið.
  2. Steikið kjúklingabitana í olíu
  3. Skerið ávextina í litla bita
  4. Saxið laukinn smátt
  5. Blandið olíunni, edikinu og kryddblöndunni úr pokanum vel saman.
  6. Setjið pastað, kjúklingabitana og ávextina í skál
  7. Hellið lið 5 yfir og blandið vel. Kælið í minnst klst.

   

Borið fram með góðu brauði og pestó.

 

Mexicó-súpa (borin fram á  foreldrakvöldi 15.september) 

 Fyrir 6

3 sellerístönglar skornir smátt
1 rauðlaukur (saxaður)
1 laukur (saxaður)
1 rauð paprika skorin smátt
100 g nautahakk
100 g svínahakk
1 stór dós tómatpúrre
1 dós hakkaðir niðursoðnir tómatar
8 dl vatn
200 g rjómaostur
5 dl matreiðslurjómi
1 dós kidney beans
2 msk grænmetiskraftur (eftir smekk)
2 tsk hvítlaukskrydd frá pottagöldrum (eftir smekk)
2 msk olía

 

  1. Skerið grænmetið smátt og steikið í olíu
  2. Bætið hakkinu út í og steikið með grænmetinu
  3. Setjið restina af uppskriftinni út í pottinn og sjóðið við vægan hita í um klst.

Gott er að bera súpuna fram í súpubrauðum sem eru farin að fást í Myllunni í Hagkaup Smáralind.

 Súpan er síðan borin fram með muldu Doritos, rifnum osti og sýrðum rjóma.

 

 

Grænmetis og grísagleði með pasta (7.bekkur)

300 g svínastrimlar smátt skornir
½ paprika í strimlum
2 tsk paprikuduft

1 dós niðursoðnir tómatar
5 dl vatn
2 grænmetisteningar
4 msk sæt chilisósa
200 g pastaslaufur
100 g blómkál í bitum

100 g spergilkál í bitum

2 msk olía til að steikja úr  

Til að strá yfir réttinn.
2 msk rifinn parmesanostur
3 msk smátt skorin steinselja

 

 

  1. Þvoið grænmetið og skerið niður.
  2. Steikjið svínastrimlana á pönnu eða í potti
  3. Bætið paprikunni út í og steikið svolitla stund í viðbót.
  4. Setjið chilisósu, tómatana og vatnið út í og blandið vel.
  5. Bætið paprikuduftinu ,kjötkraftinum og pastaslaufunum við og látið suðuna koma upp.
  6. Sjóðið undir loki í um 5 mín.
  7. Takið lokið af og setjið spergilkál og blómkál ofan á réttinn, setjið lokið á aftur og sjóðið í 5 mín eða þar til pastað er soðið.
  8. Stráið parmesan og steinselju yfir.

 Gott er að hafa nýtt brauð með þessum rétti eða brauð ristað í ofni með svolítilli olíu og parmesanosti.

 

 

Kryddkaka (7.bekkur)

125 g mjúkt smjörlíki
2 dl púðursykur
1 egg
3 ½ dl hveiti
½ tsk matarsódi
1 tsk negull
1 tsk kanill
1 msk kakó
1 ½ dl súrmjólk
( ½ - 1 dl rúsínur ef vill)

 

Aðferð.

  1. Hrærið smjörlíki og sykur saman með rafmagnsþeytara þangað til það er ljóst og létt.
  2. Bætið egginu út í og hrærið vel.
  3. Sigtið þurrefnin út í skálina og bætið súrmjolkinni við.
  4. Hrærið varlega saman með sleif eða sleikju.
  5. Bakið í einu formi við 180 gráður í 45 mín. eða skiptið í tvö minni form, þá styttist bökunartíminn.

 

Indverskur matur  (Þessi kjötréttur er mjög góður, borðaður með þessu meðlæti, hrísgrjónum og 
pappande brauði sem fæst í flestum búðum og er steikt í olíu.)

Kjöt í karrý

2 msk olía
3 tsk karrý
2 laukar
3 hvítlauksrif
1 msk engifer
1 tsk caynnepipar

1 kg lambalundir ( má nota aðra bita )
½ líter grænmetissoð
1 dl tómatpúrre
1 msk Garamasala (paste)
1 msk mango chutney
½ tsk salt
2 dl hrein jógúrt


Saxið laukinn og skerið kjötið í litla bita.
Steikið í olíunni. Bætið kryddinu út í ásamt grænmetissoðinu, tómatpúrre og jógúrt.

Sjóðið við vægan hita í 15 mín – 20 mín

 

Kela Kheera Kachumber

3 bananar
½ stór gúrka
1 rauður chillipipar smátt saxaður
50 g gróft malaðar hnetur
6 tsk kókosmjöl
3 tsk sítrónusafi

Skerið banana og gúrku í litla bita. Saxið chillipiparinn og blandið síðan öllu saman.

 

Raita sósa

3 dl AB mjólk
½ tsk salt
½ tsk sykur
¼ tsk kúmenduft
¼ tsk kúmenfræ

 

Chilli chutney með kóriander

2 grænir chilli
1 stór tómatur
1 tsk kúmenfræ
2 hvítlauksrif
¼ tsk salt
10 g kórianderlauf
1 mangó eða epli

Öllu blandað vel í blandara 

 

Naan brauð

4 bollar heilhveiti
½ tsk salt
Vatn
4 msk olía

Blandið saman í stóra skál, setjið vatn þannig að deigið verði frekar þykkt en samt viðráðanlegt. Látið standa í 1 klst.

Skiptið í tólf hluta. Fletjið út á stærð við pönnukökur. Bakið á þurri pönnu. Pakkið inn í klút, þar til brauðið er borðað.

 


Eplakaka með marsipani (10.bekkur)

Deig:
200 g lint smjör
150 g sykur
3 egg
1 tsk vanilludropar
1 tsk lyftiduft
120 g hveiti
30 g maizenamjöl
100 g möndlur

Hrærið smjör og sykur saman og bætið síðan eggjunum saman við, einu í senn, og hrærið vel á milli.Hrærið dropunum saman við. Blandið þurrefnunum saman og hrærið þeim saman við. Jafnið deiginu í stórt vel smurt eldfast fat.

 

Fylling:
200 g marsipan
2 dl rjómi
3 græn epli
3 msk sítrónusafi
50 g möndluflögur

Hrærið marsipanið út með rjómanum í potti á lágum hita þar til það hefur samlagast. Kælið og dreifið marípanblöndunni yfir deigið. Afhýðið eplin og skerið í helminga. Kjarnhreinsið þau og dreypið sítrónusafanum yfir. Leggið eplin á borð með skurðflötinn niður og skerið nokkrar raufir í helmingana. Raðið þeim síðan ofan á kökuna með kúpta hlutann upp. Stráið möndluflögum yfir og bakið í 180 gráðu heitum ofni í um 40 mín. Kælið kökuna og berið fram með vanilluís eða rjóma.

 

Árshátíðar-bomba (af árshátíð unglinga)

5 dl rjómi
3 msk sykur
3 egg
1/2 stk marengsbotn
1 stór poki Maltesers
ávextir að eigin vali
Þeytið í sitt hvoru lagi, 3 eggjahvítur (stífþeytt), 3 eggjarauður og sykur og 1/2 ltr.rjóma, blandið síðan öllu saman þegar búið er að þeyta. Brjótið Maltesers kúlurnar í hæfilega stærð og blandið saman við eggja-rjómablönduna. Brjótið marengsbotninn, setjið á botninn í skálinni og svo rjómablönduna þar ofan á. Fryst í a.m.k. 3 klst. fyrir notkun. 
10 mín. fyrir notkun þarf að taka skálina út úr frystinum og þá er gott að raða ávöxtunum ofan á. Síðan má strá ristuðum möndlum yfir ávextina til skrauts. 

Súkkulaðiterta Karlottu (10.bekkur)

2 egg
2 dl sykur
1 3/4 dl hveiti
100 gr suðusúkkulaði
100 gr smjör
100 gr heslihnetur
Egg og sykur þeytt vel saman. Hveitinu blandað saman við og hrært vel. Smjör og súkkulaði brætt saman og hellt út í deigið. Lausbotna kökuform klætt með álpappír og smurt með smjöri. Deiginu hellt í formið og hnetunum stráð yfir. Bakað við 225°C neðarlega í ofni í 15 mín. Gott að setja í frysti yfir nótt. Ath. kakan á að vera klesst.

Doritos kjúklingur (9. og 10. bekkur)

u.þ.b. 4 kjúklingabringur
1 krukka mexikönsk ostasósa
1 krukka salsa-sósa
ostur eftir smekk
1 poki Doritos snakk
Kjúklingabringurnar skornar í bita, steiktar á pönnu og kryddaðar eftir smekk. Doritos snakk (aðeins mulið) er sett í botn á eldföstu móti. Ostasósan er sett yfir og salsa sósan þar ofan á. Síðan eru steiktu bringurnar settar yfir og rifinn ostur. Bakað í ofni í 15-20 mín. á 200°C. 
Meðlæti: Hrísgrjón, salat og svo er ómissandi að hafa sýrðan rjóma og janvel guacamole.

Grænmetissúpa

1 rauðlaukur
1 laukur
¼ af litlum hvítkálshaus
4 gulrætur
½ blaðlaukur
½  rófa

3 kartöflur

1 líter kalt vatn

1 dós niðursoðnir tómatar
2 dósir tómatpúrre
½ líter matreiðslurjómi
200 g rjómaostur

2 msk grænmetiskraftur

 

 

Saxið grænmetið niður og steikið í 2 msk af olíu við háan hita.

Setjið vatnið út í ásamt öllu öðru og sjóðið við vægan hita í 30 mín.

Gott er að bera þessa súpu fram með sýrðum rjóma og muldu doritos.

Einnig gott að bera hana fram í brauðskálum sem eru bakaðar í leirblómapottum.

 

Súpuskálar

3 dl heitt vatn
4 ½ dl mjólk
3 msk þurrger
3 dl hveitiklíð
5 msk olía
1 tsk salt
1 msk sykur

Ca 15 dl hveiti

 

Uppskriftin dugar í 7  (10 cm blómapotta) 

Gerið hnoðað deig og látið lyfta sér í 30 mín.

Takið deigið og hnoðið á borði, skiptið í 7 jafna parta og setjið í blómapottana sem búið er að setja bökunarpappír inn í.

Látið lyfta sér aftur í 15 mín. Bakið síðan í 30 mín við 200 gráður og blástur

 

Skerið lok af brauðinu og takið brauð innan úr því, Setjið súpu í og borðið brauðið með.

 

Ragnar Reykás

4 kjúklingabringur eða kjúklingabitar
3 dl tómatsósa ( Hunts )
1 tsk salt
½ tsk svartur pipar
1 msk karrý

4 dl rjómi eða matreiðslurjómi

 

Blandið saman tómatsósu og kryddi. 
Setjið í eldfast mót og setjið bringurnar í. 
Veltið bringunum í sósunni. 
Setjið í ofn við 200 gráður og steikið í 20 mín.

Takið mótið úr ofninum og hellið rjómanum yfir, 
setjið aftur í ofninn og steikið áfram í 20 mín.

 

Sparikökur

2 dl hveiti
1 dl sykur
1 dl kornflögur  (muldar)
1 msk kókosmjöl
¼ tsk salt
¼ tsk matarsódi
50 g smjörlíki
50 g saxað súkkulaði

1 egg

 

  1. kveikið á ofninum og stillið á 200 gráður
  2. Saxið súkkulaðið smátt og myljið kornflögurnar
  3. Mælið öll þurrefnin í skál og myljið smjörlíkið saman við.
  4. Hrærið söxuðu súkkulaðinu saman við.
  5. Bætið egginu út í og hnoðið deigið saman.
  6. Mótið kúlur og setjið á plötu.
Bakið í 10 – 12 mín

 

Ýsugratín

1 kg ýsuflök
2 hvítlauksgeirar
2 msk karrýmauk
1 msk tikkamasala-mauk
1 haus brokkolí
3 msk sýrður rjómi
3 msk rjómi
100 g hveiti
1 tsk karrýduft
Salt og pipar
2 msk ólífuolía
200 g mozzarellaostur, rifinn
1 tsk rifið múskat

 

Roð og beinhreinsið fiskinn og skerið í bita.Afhýðið og pressið hvítlauk. Hrærið karrýmauki og tikkamasala-mauki saman og bætið hvítlauknum út í.Skerið brokkolí í bita. Hrærið sýrðum rjóma og rjóma saman við karrýmaukið. Blandið saman hveiti og karrýdufti, salti og pipar. Veltið ýsunni upp úr kryddaða hveitinu. Steikið í olíu á pönnu í um 1 mín á hvorri hlið. Setjið ýsubita og brokkolí í eldfast mót. Hellið karrýblöndunni yfir fiskinn og dreifið rifnum mozzarellaosti yfir. Bakið við 200 gráður í um 15 mín. Rífið múskatið yfir réttinn þegar hann er tekinn úr ofninum.

Berið fram með góðu brauði og hrísgrjónum.

 

 

Haustsúpa

12 dl vatn
¼ laukur
10 cm af blaðlauk
1 selleri
1 stór kartafla
1 stór gulrót
Smá rófubiti
1 dl saxað hvítkál
½ dl brotið spaghetti
2 kjúklingateningar
1 tsk steinselja

 

 

1.       Mælið vatn í pott og látið suðuna koma upp

2.       Hreinsið grænmetið,afhýðið og skolið undir köldu vatni

3.       Skerið grænmetið smátt og brjótið spaghettíið í litla bita.

Setjið grænmetið, spaghettíið og kryddið út í pottinn og látið krauma í 10 mín.

 

Rauður kjúklingur

1 kjúklingur
1 laukur
2 hvítlauksrif
½ flaska Heinz chilisósa
3 msk tómatsósa
1 msk sætt sinnep
½ msk eplaedik
3 msk púðursykur

1 msk sojasósa

 

 

1.       Kjúklingurinn er hlutaður niður, penslaður með olíu og steiktur í ofni við 200 gráður í 30 mín.
2.      
Laukurinn og hvítlaukurinn eru saxaðir smátt og steiktir glansandi á pönnu í örlítilli olíu.
3.      
Þá er bætt á pönnuna chilisósu,sinnepi,ediki,púðursykri og sojasósu. Þessu er hrært vel saman og suðan látin  koma upp.
4.      
Sósunni er nú hellt yfir kjúklingabitana og steikt áfram í 30 mín.

Borið fram með hrísgrjónum, brauði og salati.

 

Fiskisúpa

400 g ýsa eða lúða
4 stórir laukar
2 hvítlauksrif
2 msk olía
1 msk salt
2 tsk svartur pipar
2 tsk túrmerik
1 dós niðursoðnir tómatar
½ flaska hvítvín
½ líter vatn
 lárviðarlauf
1 dós kræklingur
1 dós niðursoðnir sveppir
Sveppasoð úr dósinni
Steinselja

 

 

  1. Saxið lauka og hvítlauksrif, mýkið í olíu í stórum potti (brúnið ekki)
  2. Bætið í salti,pipar,karrýi,turmerik og hrærið vel.
  3. Setjið tómata, vín, vatn og lárviðarlauf út í pottinn ásamt soði af sveppunum. Sjóðið í fjórar til fimm mínútur.
  4. Hreinsið og skerið fiskinn í teninga.Setjið út í súpuna, hleypið upp suðu og sjóðið í fjórar til fimm mínútur.
  5. Bætið kræklingunum og sveppunum við að lokum og hitið með súpunni, athugið að ofsjóða ekki súpuna.
Saxið steinselju og stráið yfir súpuna.

Lítil fléttubrauð

2 ½ dl volgt vatn
3 tsk þurrger
1 tsk salt
1 tsk sykur
400 – 450 g hveiti
1 egg til penslunar

Birki eða sesamfræ sem skraut

 

 

  1. Setjið gerið, sykurinn og saltið út í vatnið
  2. Bætið út í hveitinu þar til deigið er viðráðanlegt
  3. Látið lyfta sér á hlýjum stað í 30 mín.
  4. Hnoðið deigið og skiptið því í 16 parta
  5. Skiptið hverjum bita í 3 parta og gerið ca 12 cm lengjur
  6. Fléttið saman 3 lengjur
  7. Setjið á plötu, smyrjið með eggi og setjið birki eða sesamfræ ofan á.
Bakið á blæstri og 200°C  í ca 15 mín.

 

Veislu marengsterta

8 eggjahvítur
400 g sykur
Þeytt vel saman

Setjið á bökunarpappír á tvær plötur sem tvo botna eða tvo hringi með gat í miðjunni. 

Bakist við 120°C og blástur í ca 1 klst.

 

Á milli botnanna fer. 

3 pelar þeyttur rjómi
1 askja jarðaber
1 epli
3 kiwi
6 döðlur
2 bananar
½ appelsína
nokkur blá vínber
1 stk appelsínusúkkulaði. 

Helmingur af rjómanum- svo ávextir og súkkulaði-þá aftur rjómi

 Gott að setja smá brætt súkkulaði yfir efri botninn.

250 dollara súkkulaðibitakökur (mjög stór uppskrift) 

2 bollar smjör
720 g suðusúkkulaði
4 bollar hveiti
2 bollar púðursykur
2 tsk matarsódi
1 tsk salt
2 bollar sykur
540 g saxað Hersey´s Bar súkkulaði
5 bollar haframjöl
4 egg
2 tsk lyftiduft
2 tsk vanilludropar

3 bollar saxaðar hnetur ( má sleppa )

 

Setjið haframjöl í matvinnsluvél og vinnið þar til það er orðið að fínu dufti. Hrærið saman smjör,sykur og púðursykur þar til það er orðið létt. Bætið eggjum og vanilludropum út í.Blandið öllum þurrefnum saman og setjið út í hræruna og blandið saman. Setjið súkkulaðibita, Hersey´s Bar súkkulaðið og hnetur út í.

Mótið litlar kúlur og setjið á bökunarplötu. Bakið í 10 mínútur við 180 gráður.

 

"Rauða sultan"

3 rauðar paprikur,steinhreinsaðar og stilkurinn tekinn burt
15 rauð dried hot chilli pepper ( fæst þurrkað frá Blue Dragon ), lagt í bleyti í soðið vatn í 15 mín.
Þetta er sett í mixara.
 

1 kg sykur
1 ½ bolli borðedik

Þetta er sett  í pott með paprikumaukinu og soðið í 10 mín.

 

5 tsk Pektín sultuhleypir er sett í pottinn og soðið í 1 mín. og hrært í á meðan.

Sett í krukkur.

 

Verðlaunapastaréttur

4 kjúklingabringur
100 g pestó
50 g rjómaostur með sólþurrkuðum tómötum
4 sólþurrkaðir tómatar
4 svartar ólífur ( án steina )

Salt og grófmalaður pipar

 

Berið pestóið á bringurnar,báðum megin.
Setjið eina tsk af rjómaosti á miðju hverrar bringu, stingið einni ólífu þar í og setjið einn sólþurrkaðan tómat ofan á. Leggið síðan bringurnar saman yfir fyllinguna og festið samskeytin með tannstöngli. Setjið bringurnar í eldfast mót, kryddið þær lítilsháttar með salti og pipar og bakið þær við 200 gráður í um 35 mín. Ef þið viljið gera sósu með þá bræðið þið saman rjómaost og setjið mjólk eða rjóma út í til að þynna.
 

Gott er að bera fram brauð, hrísgrjón eða steiktar kartöflur með kryddjurtum með kjúklingabringunum.

Marmarakaka

Þessi uppskrift er í tvö lítil form 

150 g smjörlíki
1 ½ dl sykur
2 egg

Þetta er hrært saman

Bætið síðan út í:
5 dl hveiti
2 tsk lyftiduft
1 tsk vanilludropar

2 dl mjólk

 

Kakódeig

Takið 1/3 af hvíta deiginu og bætið út í það
4 tsk kakó
2 tsk sykur
2 msk vatn

Setjið nú helminginn af hvíta deiginu í form,

Þá kemur brúna deigið og síðan restin af hvíta deiginu.

Bakið í um 40 mín við 200 gráður í miðjum ofni.

 

Tortellini pastaréttur

8 sneiðar skinka
12 sneiðar pepperoni
1 rauð paprika
1 broccoli haus
1 græn paprika
½ púrrulaukur
Rifinn ostur
1 pk tortellini með osti
 

Sósa: 
2 ½ dl rjómi
1 mexicoostur
1 piparostur

 

 

Aðferð: Sjóðið pastað skv.leiðbeiningum og setjið í eldfast mót. Skerið grænmeti, skinku og pepperoni smátt, steikið á pönnu og setjiið yfir pastað. 

Sósa: Bræðið allt saman í potti og hellið yfir pastablönduna. Stráið rifnum osti yfir og bakið í 30 mín. við 200 gráður.

ATH. Það má alveg nota matreiðslurjóma í stað rjóma. 

Berið fram með góðu brauði.

 

 

Sumarbollur

3 dl volg mjólk
5 tsk þurrger
1 dl olía
1 dl kotasæla
100 g rifinn ostur
2 tsk arómat
1 tsk sellerísalt

Ca 400 g hveiti

 

 

Blandið öllu saman en passið að setja ekki allt hveitið út í. Þegar þið getið komið við deigið án þess að það festist við hendurnar þá er komið nóg hveiti. Betra er að hafa deigið eins blautt og þið ráðið við. Látið hefast í 30 mín. Búið til bollur og setjið á plötu. Látið hefast aftur í 20 mín. Gott er að strá parmesanosti yfir áður en þær eru bakaðar.

Verði ykkur að góðu.