Fréttir úr smíðastofunni

 

 

 

Til baka

Við kaupum geit.

Hópverkefni í 6. bekk

Nemendur 6. bekkjar fjölluðu um fjöldaframleiðslu og sjálfvirkni í hópverkefnum. Nemendum var sýnd kvikmyndin Nútíminn og fleiri myndir þar sem fjöldaframleiðsla kom við sögu. Rætt var um vélvæðingu og áhrif hennar á manninn. Sett var á fót fyrirtæki með það hlutverk að fjöldaframleiða einhverja vöru. Kosið var í embætti eftir lýðræðisreglum og varan  hönnuð í hópunum. Var ákveðið að framleiða lyklakippur í öðrum bekknum en skóhorn í hinum. Nemendum var síðan skipt í framleiðsluhópa og hver hópur hafði með höndum ákveðið ferli framleiðslunnar. Gæðaeftirlit var með framleiðslunni. Nemendur ákváðu að selja vöruna á vorhátíðinni sem haldin var 7. júní. Ágóðinn verður síðan notaður til að kaupa geitur eða önnur húsdýr hjá Hjálparstofnun kirkjunnar fyrir fjölskyldur í Afríku.

   

Stærðfræðikeppni grunnskólanna

Nemendur í 9. bekk tóku þátt í stærðfræðikeppni grunnskólanna. Verkefni þeirra var orka og orkunotkun. Þeir smíðuðu starfhæft líkan af vatnsaflsvirkjun sem þeir sendu í keppnina ásamt útreikningum sínum.

Þemavika 2010

Nemendur í 8. J.U. smíðuðu sér gítar í þemavikunni. Hann hefur ágætan hljóm og hægt að stilla í rétta tónhæð.

Aðrir smíðuðu Avatar dreka til að nota í stuðningsliði Lindaskóla í Skólahreysti.

Myndbönd af nemendum við vinnu í smíðastofunni

Þér er boðið í heimsókn í smíðastofuna til að kynnast starfinu þar. Hér að neðan eru tenglar á myndbönd  sem sýna nemendur vinna að verkefnum sínum. Smellið á myndirnar til að spila myndböndin.

    

  1. P.Þ.                  4.L.J.                            5. G.G.

 Þemavika skólans

16. - 20 mars. Í þemavikunni eru nemendur 3. og 4. bekkjar að fjalla um hafið. Skip og siglingar eru órjúfanlegur þáttur í þeirri umfjöllun og krakkarnir vinna í námsstöð sem kallast Skipasmíðastöð Hafliða. Þar fjalla þau um skipin og smíða sér fley eftir eigin teikningum. Einnig koma aðrir nemendur sem eru að vinna að verkefnum sínum og nýta aðstöðuna í smíðastofunni. Það er því líf og fjör í smíði þessa dagana.

 

Þemaverkefni í 5. bekk

14.3  Nemendur 5. bekkjar unnu þemaverkefni um Leif heppna og víkinga. Einn hópurinn smíðaði vopn frá víkingatímanum. Afrakstur vinnunnar var svo sýndur á samkomu á bókasafninu.

Peningagjöf til ABC barnahjálpar

17. 12. Í dag kom fulltrúi ABC barnahjálpar í skólann til að taka á móti fjárframlagi nemenda 6. Á.J. sem safnaðist með sölu jólavarnings á menningardögum. Ákveðið var að verja peningunum til barna á Indlandi og í Kenya.

Handverkssýning á menningardögum

12.12. Sett hefur verið upp lítil handverkssýning á bókasafni skólans í tengslum við menningardagana. Þar eru sýnd verk eftir nemendur á öllum aldri, unnin í margvíslegan efnivið.

 

 

Sölubás á menningardögum

12.12. Við setningu menningardaga í dag voru nemendur 6. Á. J. með sölubás eins og ákveðið hafði verið. Skemmst er að segja frá því að allur varningurinn seldist og einnig standurinn sem krakkarnir höfðu gert til að sýna framleiðslu sína.

 

5.12. Krakkarnir í 6. A.J. hafa ákveðið að vera með sölubás á menningardögum í skólanum núna fyrir jólin. Þar ætla þau að selja jólaskraut sem þau hafa gert í smíðatímum og verja ágóðanum af sölunni til styrktar ABC barnahjálp. Hlutirnir eru unnir í hópvinnu og hafa krakkarnir skipulagt vinnuna og framleiðsluferlið sjálf undir leiðsögn kennara.

 

Heimskókn frá Grænlandi

15. 09. Í dag fengum við góða gesti. Þrír nemendur frá Kulusuk á Grænlandi komu í heimsókn og voru með 6. E.G. í smíðatíma. Krakkarnir í bekknum kynntust nýjum vinum og sýndu gestunum hvernig málmsteypa fer fram. Gerð voru hálsmen sem grænlensku krakkarnir fengu til eignar og kvöddu allir með bros á vör.