|
Lengd
viðvera
Frístundaheimili Félagsþjónustunnar er fyrir fatlaða nemendur í 5.
til 10. bekk grunnskóla Kópavogs sem eiga lögheimili í kópavogi.
Haustið 2008 tekur/tók til starfa frístundaheimili fyrir fatlaða
nemendur í grunnskólum Kópavogs og er því ætlað að taka við
hlutverki Dægradvalar að loknum 4. bekk.
Frístundaheimilið er frjálst tilboð þar sem börnunum gefst tækifæri
til að dvelja við leik og skapandi störf í umsjá starfsfólks eftir að
skólastarfi líkur. Um er að ræða heilsárs skólatengt tilboð fyrir
fatlaða nemendur 5. til 10. bekkjar allra grunnskóla Kópavogs sem hafa
greiningu frá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. Starfsemin fer
fram frá því að skólastarfi líkur um 13:15 til 17:15 alla virka daga
en frá 8:00 til 16:00 í vetrarfríum og á starfsdögum skólanna. Yfir
sumartímann verður boðið upp á fimm vikna námskeið frá 8:00 til
16:00.
Úrræðið er til húsa í Smáraskóla við Dalsmára 1 og boðið er
upp á keyrslu frá heimaskóla barnanna í frístundaheimilið. Boðið
er upp á síðdegishressingu gegn vægu efnisgjaldi en foreldrar geta
einnig valið að senda barnið með nesti. Verð fyrir vistun á mánuði
tekur mið af gjaldtöku fyrir dægradvöl í grunnskólum Kópavogs og er
eftirfarandi: Fyrir 5 tíma á viku kr. 5.513, fyrir 10 tíma á viku kr.
8.820, fyrir 15 tíma á viku kr. 11.025 og 20 tíma á viku kr. 12.679.
Markmið Frístundaheimilisins er að veita þeim nemendum sem þar dvelja
öruggt athvarf, fastan punkt í tilveruna og bjóða þeim upp á
skipulagðar tómstundir þar sem að allir geti fundið eitthvað við
sitt hæfi. Sérstök áhersla er lögð á að hverjum og einum nemanda líði
vel og finnist gott að koma í frístundaheimilið þar sem hann nýtur sín
í öruggu og skemmtilegu umhverfi. Leiðarljós starfseminnar eru fagleg
vinnubrögð, foreldrasamstarf og virðing fyrir nemendunum, aðstandendum
þeirra og öðru starfsfólki. Við upphaf hverjar annar mun forstöðumaður
vinna áætlun fyrir hvern og einn nemanda í samráði við aðra
starfsmenn og aðstandendur. Í áætluninni skal setja fram
einstaklingsmarkmið sem unnið skal að og greindar leiðir að þeim. Í
lok hverrar annar fer svo fram endurmat þar sem árangur er metinn og lærdómur
dreginn af reynslunni.
Frístundaheimilið er rekstrareining innan þjónustudeildar fatlaðra og
lýtur yfirumsjón hennar. Forstöðumaður er Jóhanna Lilja Ólafsdóttir.
Hún veitir nánari upplýsingar í síma 570-1500 eða á netfanginu johannalilja@kopavogur.is.
|