Lindaskóli

Núpalind 7

201 Kópavogur

Sími: 570-6500

Fax: 554-3915

Tölvupóstur: kristinn4@lindaskoli.is

 

 

Grænfáninn í Lindaskóla

Lifum í sátt við umhverfið

 

                        Fréttir úr skólastarfinu

Skólar á grænni grein - Grænfáninn
Skólar á grænni grein er alþjóðlegt verkefni til að auka umhverfismennt og styrkja umhverfisstefnu í skólum. Þeir skólar sem vilja komast á græna grein í umhverfismálum leitast við að stíga skrefin sjö. Þegar því marki er náð fá skólarnir leyfi til að flagga Grænfánanum næstu tvö ár en sú viðurkenning fæst endurnýjuð ef skólarnir halda áfram góðu starfi. Grænfáninn er umhverfismerki sem nýtur virðingar víða í Evrópu sem tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum. Skrefin sjö eru ákveðin verkefni sem efla vitund nemenda, kennara og annarra starfsmanna skólans um umhverfismál. Verkefnin eru bæði til kennslu í bekk
og til að bæta daglegan rekstur skóla. Þau auka þekkingu nemenda og skólafólks og styrkja grunn að því að tekin sé ábyrg afstaða og innleiddar raunhæfar aðgerðir í umhverfismálum skóla. Jafnframt sýnir reynslan í Evrópu að skólar sem taka þátt í verkefninu geta sparað talsvert í rekstri.

 


ncaa tickets theatre tickets

Umhverfisstefna Kópavogs

7. júní.

Það var glatt á hjalla í dag þegar skólinn tók á móti Grænfánanum í fjórða sinn. Athöfnin var síðasti liður á dagskrá á skólaárinu. Eftir að fáninn hafði verið dreginn að húni hófst fjölskylduskemmtun foreldrafélags Lindaskóla og var margt gert sér til skemmtunar. Hægt er að sjá myndir frá afhendingunni hér.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

1. júní.

Verkefninu Gengið í skólann lauk fyrir skömmu. Nú liggja niðurstöður fyrir og hægt er að sjá þær hér. Einnig er hægt að skoða verkefnið hér. Sjöttu bekkir unnu með niðurstöðurnar á mjög skemmtilegan hátt í stærðfræðiverkefnum. 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

28. maí.

Í dag komu fulltrúar frá Landvernd til að taka út Grænfánastarfið í skólanum. Þeir gengu um skólann og spjölluðu við nemendur og starfsfólk um umhverfisáherslur skólans og hvernig fólki finnist ganga að fylgja umhverfismarkmiðum eftir. Við sama tækifæri var þeim sem höfðu fengið einkunnina 10 í umhverfiseftirliti sem fram fór í maí afhent viðurkenningaskjal fyrir góðan árangur. Þess ber að geta að Grænfánanum verður flaggað í fjórða sinn við skólaslitin 7. júní.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

26. maí.

Umhverfislöggurnar hafa nú lokið eftirliti sínu, farið í allar stofur og kannað hvort áherslum  í umhverfisstefnu skólans sé fylgt eftir. Það er ástæða til að hrósa nemendum og kennurum fyrir frábæra frammistöðu, sex stofur voru með 10 í einkunn og 5 með 9. Þrettán stofur voru svo með einkunnina 8. Þið getið skoðað niðurstöðurnar hér. 

 

21. maí.

Græna bylgjan stóð fyrir viðburði í dag, þar sem fulltrúum grunnskóla Kópavogs var boðið að taka þátt í gróðursetningu trjáplantna. Boðið var tveimur fulltrúum hvers skóla (strák og stelpu).  Umhverfisráðuneytið, Skógræktarfélag Íslands og Yrkjusjóður – sjóður æskunnar til ræktunar landsins - eru í samstarfi um þetta verkefni (The Green Wave - http://greenwave.cbd.int/en/home) Þessi9 viðburður var í tengslum við dag líffræðilegs fjölbreytileika 22. maí, en Græna bylgjan er alþjóðlegt verkefni sem Samningurinn um líffræðilegan fjölbreytileika stendur fyrir. Fulltrúar Lindaskóla voru Sunna Dögg Jónsdóttir og Eiríkur Orri Agnarsson. Báru þau sig fagmannlega við að gróðursetja tvö tré, birki og reyni, í Tungulundi í brekkunni fyrir ofan skólann.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

27. apr.

Í tilefni af umhverfisdeginum 25. apríl hélt Lindaskóli sinn umhverfisdag mánudaginn 26. apríl. Kennarar voru með kynningar og verkefni tengd umhverfismálum í tilefni dagsins. Meira hér.

 

25. apr.

Gengið í skólann.

Verkefnið Gengið í skólann fór af stað í dag og eru allir hvattir til að ganga til og frá skóla að minnsta kosti næstu tvær vikurnar.. Þetta er í þriðja sinn sem gönguátakið er sett af stað og er átakið orðið fastur liður í skólastarfinu. Bekkirnir eru með verkefni tengd gönguátakinu og má fræðast um það hér.

 

12.apr.

Nú hafa tillögur nemenda að kennsluverkefnum í umhverfismennt verið flokkaðar og hægt er að sjá þær hér.

 

24. mars.

Fundur var haldinn í umhverfisnefndinni til að ræða skipulag á degi umhverfisins. Meira hér.

 

7. mars.

Bréf hefur borist frá umhverfisráðuneytinu um dag umhverfisins og atburði tengda honum. Bréfið má sjá hér.

 

3. mars.

Fundur var haldinn í umhverfisnefnd skólans í dag. Þangað mættu allir bekkjarfullrúarnir. Tilgangurinn var að safna saman hugmyndum nemenda að umhverfisverkefnum til að taka fyrir á næsta skólaári. Hugmyndin er að allar námsgreinar verði með a.m.k. eitt umhverfistengt verkefni á hvorri önn. Meira hér.

 

27. feb.

Varðliðar umhverfisins 2010

Í fjórða sinn er boðað til verkefnasamkeppni um umhverfismál á meðal grunnskólabarna í 5.

til 10. bekk. Keppnin kallast Varðliðar umhverfisins og var haldin í fyrsta skipti vorið 2007.

Það eru umhverfisráðuneytið, Landvernd og Náttúruskóli Reykjavíkur sem standa að

keppninni. Hægt er að nálgast upplýsingar um keppnina á heimasíðu umhverfisráðuneytisins,

www.umhverfisraduneyti.is/vardlidar.

 

 

15. feb.

Nú er búið að setja upp skiltið sem vann í

samkeppninni í fyrra. Skiltið á að minna bílstjóra sem

koma að skólanum að drepa á vél bílsins ef þeir

staldra við fyrir utan skólann. Á myndinni er

vinningshafi hugmyndasamkeppninnar,  sem

jafnframt sá um að mála skiltið, Valdimar Friðrik

Jónatansson ásamt verkefnisstjóra

Grænfánans í Lindaskóla Kristni Svavarssyni.

 

 

 

8. jan.

Frábært átak til að fylgja umhverfissáttmála skólans.

Fréttir úr 7. Á.J.

Markmið okkar í 7. ÁJ er að fá góða einkunn frá grænfánanefndinni í næstu eftirlitsskoðun. Þess vegna ákvað ég að setja upp kerfi þar sem nemendur og þá sérstaklega umsjónarmenn sjá um að öllum reglum sé framfylgt. Ég útbjó „tékklista“ sem umjónarmennirnir geta kíkt á í lok dags til að athuga hvort allt sé á hreinu í stofunni. Meira hér.

 

6. jan.

Fundur var haldinn í umhverfisnefndinni í dag þar sem rætt var um umhverfisfræðslu, skólanámskrá og fleira tengt umhverfismálum. Hér er fundargerðin.

 

12. des.

Fundur var haldinn í umhverfisnefndinni í dag. Hér er fundargerðin.

 

25. nóv.

Umhverfislöggur skólans fóru í eftirlitsferð nú í mánuðinum. Tilgangurinn var að kanna hversu vel nemendum og kennurum gengur að fylgja umhverfismarkmiðum skólans. Ein stofa fékk einkunnina 10. Húsráðandi þar er Anna Pála Gísladóttir og var henni afhent viðurkenning fyrir frammistöðuna á kennarafundi í dag. Hér er hægt að sjá niðurstöður úr eftirlitinu.

 

12. nóv.

Nemendur í öðrum bekk unnu verkefni tengt árstíðunum í upplýsingamennt í haust. Þeir notuðu myndir af Netinu og bjuggu til myndasögu um eina eða fleiri árstíðir.
Hér er hægt að skoðað myndasögurnar:
2. NS:
Smellið hér
2. MÁ:
Smellið hér

 

11. nóv.

Skólanum hefur borist auglýsing um námskeið í útikennslu fyrir kennara. Skólinn greiðir námskeiðsgjald fyrir þá sem óska þess að sækja námskeiðið. Nánar um námskeiðið hér.

 

4.nóv.

Fundur var haldinn í umhverfisnefnd Lindaskóla í dag. Hér er hægt að nálgast fundargerðina og hér eru glærurnar.

 

26. okt.

Kennarar hafa verið beðnir upplýsa umhverfisnefndina um hvernig umhverfisfræðslu er háttað í þeirra kennslu. Meira hér.

 

19. maí

Út er kominn spilastokkur, námsefni í umhverfis- og náttúrufræði, góð ráð fyrir þig og umhverfið. Nánari upplýsingar eru á vefnum http://www.natturan.is/efni/flokkur760/sida1/

Spilastokkurinn verður á bókasafninu fyrir þá sem áhuga hafa á að skoða hann og nýta sér í kennslu.

 

27.apríl.

Í dag fór Jóhannes yfirlögga Grænfánans í 1.M.Á. og 4.L.J. til að afhenda krökkunum viðurkenningarskjal fyrir góðan árangur í að halda umhverfissáttmála Lindaskóla. Þessir bekkir fengu einkunnina 10 þegar umhverfislöggurnar fóru í eftirlitsferð um stofur skólans fyrir skömmu. Til hamingju krakkar!!

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

24. apríl.

Dagana 9.  10. og 11. mars fóru umhverfislöggurnar  í eftirlitsferð um  skólastofurnar.

Nánar um það hér.

 

20. mars.

Þemavikan tókst með miklum ágætum og nemendur 1. til 6. bekkjar unnu verkefni tengd hafinu. Má þar nefna fiskveiðar og sjálfbær þróun þeirra, rannsóknir á fiskistofnum sem Hafrannsóknarstofnun sér um, siglingar og skip, og vistvæna orku sem notuð er til að knýja skipin þ.e. vindorku, ásamt umfjöllun um lífríki hafsins.  Hér er hægt að sjá myndir frá þemavikunni.  Á næstunni verður sett inn á þessa síðu það námsefni sem tengdist þemanu.

 

6. mars.

Þemavika

Dagana 16. til 20. mars verður þemavika í skólanum. Þema ársins er HAFIÐ. Þar sem hafið og allt sem því tengist er umhverfismál, er ætlunin að fjalla um þemavinnuna á þessari síðu. Einnig er ætlunin að safna saman öllum verkefnum sem lögð verða fyrir hópana í þemavikunni og útbúa myndarlegan námsefnispakka sem miðlað verður til annarra.

 

5. mars.

Áhugaverð sýning

 

Vert er að benda á áhugaverða sýningu um sjálfbæra þróun í sem haldin verður í Ráðhúsi Reykjavíkur dagana 8. til 22. mars 2009. Hér er hægt að skoða heimasíðu sýningarinnar. 

 

12. jan.

Varðliðar umhverfisins 2009

Boðað hefur verið til samkeppninnar
Varðliðar umhverfisins í þriðja sinn. Samkeppnin er verkefnasamkeppni um umhverfismál  meðal grunnskólabarna í 5. til 10. bekk. Umhverfisráðuneytið, Landvernd og Náttúruskóli Reykjavíkur standa að henni. Kennarar eru hvattir til að leiða slík verkefni í sínum umsjónarbekkjum og koma verkefnum til verkefnisstjóra Grænfánaverkefnisins í Lindaskóla sem mun síðan senda þau áfram í keppnina í nafni skólans. Upplýsingabækling um verkefnið er hægt að fá hér.

 

1. des.

Í dag var síðustu blómunum frá Toyota á Íslandi komið í fóstur í yngstu bekkjunum. Þær Arndís og Þórdís í umhverfisnefndinni tóku að sér að afhenda blómin í bekkjunum og segja frá umhirðu þeirra og hvernig þau komust í eigu skólans. Einnig hvöttu þær krakkana til að fara vel með gróður og sýna umhverfinu virðingu. Sjá nánar hér.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

28. nóv.

Í morgun komu fulltrúar Toyota á Íslandi og færðu skólanum pottablóm. Fulltrúar fyrirtækisins skýrðu umhverfisnefnd skólans frá umhverfisstefnu Toyota á Íslandi og upplýstu að blómin hafa verið í fóstri hjá ýmsum deildum fyrirtækisins. Skólinn var beðinn að taka við þeim í áframhaldandi fóstur. Umhverfisnefndin tók á móti þessari góðu gjöf og kom blómunum fyrir hjá 4– 7 bekk. Sjá myndir frá afhendingunni hér.

 

19. nóv.

Fundur í umhverfisnefnd Lindaskóla 19. nóv. 2008

Fundarefni var að kjósa í eftirlitssveit Grænfánaverkefnisins og gera tillögur að umgengnisreglum í miðrými skólans. Lesið meira.

 

12. nóv.

Nú hafa verið hengd upp veggspjöld í öllum stofum sem minna á áherslur skólans í flokkunar og orkumálum. Hægt er að skoða veggspjöldin á stikunni hér til vinstri með því að smella á viðkomandi hnappa.

 

7. nóv.

Sendur hefur verið tölvupóstur til alls starfsfólks skólans til að minna á áherslur Lindaskóla á flokkun pappírs og í orkumálum. Einnig hafa verið settir upp hlekkir til að minna á þessa mikilvægu málaflokka í Grænfánaverkefninu. Smelltu á viðeigandi hnappa á hnappastikunni hér til vinstri til að skoða áherslur skólans í þessum efnum.

 

24. okt.

Nú er gönguátakinu formlega lokið og niðurstöður um þátttöku liggja fyrir. Það er gaman að segja frá því að verkefnið tókst mjög vel og eru allir bekkir með yfir 90% þátttöku og 7. Þ.S var með 100%.

Þriðjudaginn 28. okr og miðvikudaginn29 okt. Veða verðlaun fyrir góðan árangur veitt bekkjunum sem þátt tóku. Lesið meira um það hér.

 

Tíu góðar ástæður fyrir því að ganga í skólann

 

7. okt.

Á morgun 8. okt. 2008 hefst verkefnið „Göngum í skólann“ í Lindaskóla í 1. – 7. bekk.

Hvet alla til þess að vera jákvæða og hvetja krakkana til dáða.

 

2.okt.

Göngum í skólann. Kveðja frá Maríu.

Þann 8. okt. (alþjóðagöngudeginum)  ætlum við byrja á verkefninu „ Göngum í skólann“.

Umsjónakennarar hafa fengið allar upplýsingar um verkefnið. Nauðsynlegt er að merkja við þegar nem. ganga í skólann.

Þetta er líka keppni milli bekkja í %.

Síðastliðið vor var þátttakan 98,5% í 1. – 6. bekk. Nú í haust ætlum við að hafa 7. bekk með og láta þau vaxa upp með þessu verkefni.

Gaman væri ef nemendur myndu hengja upp verk sín fram á gang, svo allir geti séð hvað þau hafa verið að gera.

Gott væri ef umsjónakennarar gætu sent  foreldrum/forráðamönnum  línu heim um verkefnið.

Gangi ykkur vel

María „göngugarpur“

Hér er hægt að skoða verkefnið. Og hér er verkefnið frá í fyrra vor.

 

23. sept. Fundur var haldinn í umhverfisnefndinni í dag. Þar kvaddi nefndin frá í fyrra og nýir nefndarmenn voru boðnir velkomnir. Rætt var um starfið í umhverfisnefndinni, hlutverk nefndarmanna og framtíðarsýn okkar í Grænfánaverkefninu. Að lokum var boðið upp á veitingar í tilefni dagsins. Hér er hægt að lesa fundargerðina.

 

15. sept. Nú er búið að setja upp veggspjald sem á að minna alla á vinnureglur varðandi endurvinnslu, flokkun, innkaup, vatns- og orkumál. Þar er hnykkt á gömlum áherslum grænfánaverkefnisins í Lindaskóla. Hér er hægt að skoða veggspjaldið.

 

9. sept.

Nú er vetrarstarfið í grænfánaverkefninu að hefjast. Verið er að kjósa bekkjarfulltrúa í umhverfisnefndina og síðan verður boðað til fundar í nefndinni til að skipuleggja vetrarstarfið.

 

Búið er að skipuleggja tiltekt á skólalóð fyrir allan veturinn og verður það kynnt kennurum í vikunni. Einnig er ætlunin að fara af stað með verkefnið Gengið í skólann nú á haustdögum. Verður gaman að sjá hvort okkur tekst eins vel til og í vor.

 

Búið er að minna á flokkun pappírs og rusls í bekkjunum og vonumst við til að allir taki höndum saman og flokki og skili.