Stefna Lindaskóla gegn einelti Skilgreining á einelti Það sem einkennir einelti · Einelti nær stundum yfir langt tímabil og gerir líf þolandans mjög erfitt. · Einstakur atburður telst ekki einelti. · Ójafnvægi er í styrkleikasambandi milli gerenda og þolenda. Sá sem verður fyrir eineltinu ver sig ekki alltaf sjálfur heldur lætur það yfir sig ganga.
Fyrirbyggjandi aðgerðir · Skólinn hefur frá upphafi lagt áherslu á góð samskipti við foreldra t.d. með fréttabréfum, bekkjarpóstum og fjölskylduhátíð þannig að foreldrar finni sig velkomna í skólanum bæði þegar vel gengur og eins ef eitthvað bjátar á. · Útivist er skipulögð og yngri nemendur velja sér leiksvæði í frímínútum. · Hópefli er skipulagt fyrir nemendur, bæði í gegnum kennslu í lífsleikni og með skipulögðum ferðum nemenda. · Í lífsleikni er lögð áhersla á að nemendur læri góð samskipti. Öllum nemendum verður að vera ljóst hvað einelti er og að einelti er ekki liðið í Lindaskóla. · Nemendur eru hvattir til að láta vita ef þeir vita af nemanda sem verður fyrir einelti. · Bekkjarfundir eru haldnir reglulega í öllum bekkjum skólans. · Í mörgum bekkjum hjá yngri nemendum eru starfandi vinahópar. Foreldrar bera ábyrgð á framkvæmd og skipulagi þeirra, en umsjónakennari getur aðstoðað þá við að koma hópunum af stað. · Fylgst er með líðan nemenda með tengsla- og eineltiskönnunum sem lagðar eru fyrir a.m.k. einu sinni á ári. Námsráðgjafi skólans hefur umsjón með þeim. · Nýir nemendur fá sérstakar móttökur hjá deildarstjóra við skólabyrjun. Þeir fá síðan viðtal við námsráðgjafa nokkrum vikum eftir skólabyrjun. Vinateymi er í öllum bekkjum og taka þá til dæmis tveir nemendur í bekknum að sér að kynna skólann og styðja nýjan nemanda félagslega. Undirbúningur er hjá umsjónarkennara og/eða námsráðgjafa. · Nauðsynlegt er að allir þeir sem hafa grun um einelti komi þeim upplýsingum til umsjónarkennara svo hægt sé að taka sem fyrst á málinu. · Námsráðgjafi er ætíð til aðstoðar í eineltismálum, á hvaða stigi málsins sem er.
Ferill eineltismála 1. Ef grunur er um að nemandi verði fyrir einelti skal upplýsingum komið til umsjónarkennara. 2. Umsjónarkennari greinir málið samkvæmt skilgreiningu skólans um einelti og leitar eftir viðbótarupplýsingum. Umsjónarkennari ákveður næstu skref eftir eðli málsins. Gefa þarf þolanda upplýsingar um það hvað umsjónarkennari hugsar sér að gera og aðgerðir séu gerðar í samkomulagi við þolanda. Ef umsjónarkennari telur heppilegra að námsráðgjafi taki við málinu getur hann vísað málinu til hans. 3. Ef umsjónarkennari metur að um einelti sé að ræða gerir hann foreldrum gerenda og þolenda grein fyrir stöðu mála. Umsjónarkennari veitir upplýsingar um úrræði skólans sem þeim standa til boða samkvæmt eðli málsins, svo sem viðtöl við námsráðgjafa og/eða viðtöl við sálfræðing skólans. Farið er yfir:
· Hvað foreldrar geta gert til að aðstoða barn sitt og skólann. · Hver ábyrgð foreldra er í meðferð eineltismála. · Samstarf foreldra og umsjónarkennara um eftirfylgd málsins. · Allt ferlið er skráð af umsjónarkennara og foreldrar hvattir til að skrá hjá sér málsatvik.
4. Umsjónarkennari gerir viðkomandi kennurum, skólastjórnendum og öðru starfsfólki grein fyrir stöðu mála. |
|
![]() |