Hér eru myndir af fatnaði sem eru til kaups ef óskað er eftir hér í Lindaskóla. Eins og fram kom á innkaupalista nemenda í haust stóð að hægt væri að kaupa íþróttafatnað merktum skólanum. Vörurnar eru frá HENSON.
Við erum búin að fá sýnishorn hingað upp í skóla og geta foreldrar nú pantað á börn sín ef óskað er. Eins létum við útbúa hettupeysu renndri að framan sem merkt er skólanum og stendur á bakinu á henni LINDÓ. Hún er svört með hvítu letri. Íþróttafatnaðurinn eru bláar stuttbuxur og bolurinn hvítur með bláu merki skólans. Eins er hægt að nota bolinn einan og sér.
Við erum með sýnishorn af öllum stærðum hér inn á skrifstofu skólans sem hægt er að máta ef menn eru ekki vissir um stærðina.
Stærðirnar eru eftirfarandi:
Bolir 5/6 ára, 7/8 ára 9/10 ára, 11/12 ára og síðan er það small - medium- largre
Stuttbuxur 22/24, 26/28, 30/32, 34/36, 38 /40
Hettupeysurnar koma í s-m-l-xl í barna og s-m-l- fyrir eldri krakka. Large í barna samsvarar 146 cm þannig að m væri 134 cm og s 128 cm og xl 158 cm síðan tekur við small í fullorðins sem 170 cm og upp úr.
Verðin eru eftirfarandi:
Bolir hvítir kr. 1.000
Stuttbuxur bláar kr, 1.500
Hettupeysur svartar kr. 4.000
Vinsamlega sendið póst á netfangið margreta@lindaskoli.is ef óskað er eftir að panta fatnað. Eins verður að koma fram nafn barns og bekkur.