Fréttir 2009-2010

15.06.10
Lestrarátak Lindaskóla
í 2. – 7. bekk stóð yfir skólaárið 2009 – 2010. Átakið mun halda áfram næstu tvö skólaár.

Hér má lesa skýrslu um verkefnið.


14.06.10
Við Lindaskóla hafa verið settar nýjar skólareglur og taka þær gildi frá og með hausti 2010. Reglurnar eru samþykktar með þeim fyrirvara að í Menntamálaráðuneytinu er í smíðum ný reglugerð sem væntanleg er í haust. Ef þurfa þykir verða reglurnar uppfærðar í samræmi við þá reglugerð. Smellið hér til að skoða skólareglur Lindaskóla...

 

07.06.10
Útskrift 10. bekkjar
var haldin hátíðleg föstudaginn 4. júní kl. 15 í matsal skólans.  Salurinn var í hátíðarbúningi og loguðu kertaljós á öllum borðum.  Nemendur og foreldrar mættu spariklæddir á útskriftina sem og kennarar skólans.  Athöfnin hófst á ávarpi skólastjóra og í kjölfarið flutti fulltrúi foreldra  innlegg sem og fulltrúi nemenda sem flutti sköruglega ræðu enda einn af meðlimum ræðuliðs Lindaskóla.  Einkunnir voru afhentar sem og viðurkenningar fyrir góðan námsárangur. Þrír af útskriftarnemum sungu lagið „The show“ sem lenti í 3ja sæti í vetur í söngkeppni ÍTK.  Að lokum gæddu allir sér á girnilegu hlaðborði sem foreldrar sáu um. Lindaskóli óskar útskriftarnemum til hamingju með daginn og óskar þeim velfarnaðar í framtíðinni. Smellið hér til að skoða myndir...


07.06.10
Hin árlega ferð 10.bekkinga stóð þessa daga og mega lesendur velja hvers kyns ferð þetta var (það er nú ekki alltaf sem lesendur fá slíkt val !). Lesa meira...
Smellið hér til að skoða myndir...

 

04.06.10
4. júní var Norræna skólahlaupið hlaupið í Lindaskóla. Nemendur í 1. – 7. bekk tóku þátt og hlupu tvo til tíu kílómetra, allt eftir getu og áhuga hvers og eins. Smellið hér til að skoða myndir...


03.06.10
Fimmtudaginn 27. maí fóru nemendur í 5. bekk í Guðmundarlund þar sem gróðursett voru birkitré í reit sem merktur er Lindaskóla. Að því loknu var haldið inn í Guðmundarlund þar sem m.a. var farið í leiki og pylsur grillaðar. Ferðin tókst í alla staði mjög vel og ekki skemmdi fyrir hvað veðrið var gott þennan daginn. Smellið hér til að skoða myndir...


03.06.10 
Í dag fór 7. bekkur í hjólaferð frá Lindaskóla og yfir í Sjálandshverfið í Garðabæ. Þar er búið að búa til litla ylströnd, svipaða þeirri og er í Nauthólsvík. Þar fóru þau að vaða og sumir gerðust svo kræfir að skella sér til sunds. Veðrið var eins og best var á kosið og gekk ferðin prýðisvel í alla staði. Smellið hér til að skoða myndir...


03.06.10
Í dag fengu nemendur í 1. bekk reiðhjólahjálma að gjöf frá Kiwanisklúbbnum Eldey í Kópavogi.  Kiwanishreyfingin og Eimskipafélag Íslands ehf. gefa öllum börnum í 1. bekk í grunnskólum landsins reiðhjólahjálma.  Um er að ræða árlegt átak Kiwanishreyfingarinnar og Eimskips en að auki nýtur verkefnið aðstoðar Forvarnahússins. Smellið hér til að skoða myndir... 


31.05.10
Í dag fór fram árlega keppni milli 10. bekkinga og kennara í fótbolta og brennó og voru fjölmargir áhorfendur mættir til að hvetja liðin áfram. Keppnin hófst á knattspyrnuleik og endaði leikurinn með sigri nemenda 8 – 4 eftir mikla baráttu beggja liða. Strax á eftir tók við brennókeppnin og endaði hún einnig með sigri nemenda. Ljóst er að kennarahópurinn þarf að æfa stíft næsta vetur til að eiga möguleika í komandi 10. bekk. Smellið hér til að skoða myndir...


31.05.10
Föstudaginn 28.maí fór 4.bekkur í vorferð í Fræðasetrið í Sandgerði. Við byrjuðum á því að fara í fjöruna við Garðskaga að finna eitthvað úr lífríkinu til að skoða. Ekki reyndist mikið líf í fjörunni en höfðu börnin þó gaman að og söfnuðu þara og öðru slíku í fötur. Að því loknu héldum við í Fræðasetrið þar sem vel var tekið á móti okkur með fræðslu og fengu börnin síðan að skoða safnið. Smellið hér til að skoða myndir...

 

28.05.10
Fimmtudaginn 27. maí fór 2. bekkur í sveitaferð og var ekið sem leið lá að Grjóteyri við Meðalfellsvatn. Þar var tekið mjög vel á móti okkur og við skoðuðum alls kyns dýr svo sem hesta og folöld; kindur og lömb; kettlinga, hvolpa og unga. Eftir það fórum við á út leiksvæði þar sem við drukkum nesti og lékum okkur í leiktækjum, traktorum og við hundana á bænum. Við fengum frábært veður og nutum þess að slappa af í íslenskri sveit. Nemendur okkar voru til fyrirmyndar og það verður bara gaman að fara með þennan hóp aftur í ferð.
Smellið hér til að skoða myndir...


28.05.10
Tinna María íþróttaþjálfari hjá HK var með stutta kynningu fyrir nemendur 1. – 6. bekkjar á taekwondo. Krakkarnir voru mjög áhugasamir og tóku virkan þátt í öllum æfingum, spörkum og höggum eins og sjá má á eftirfarandi myndum...


18.05.10
Mánudaginn 17. maí var haldinn vorskóli fyrir tilvonandi nemendur í 1. bekk. Þá fá nemendur að hitta verðandi bekkjarsystkini sín sem og umsjónarkennara. Þau unnu að ýmsum verkefnum í bekknum og skoðuðu Dægradvölina. Það var almenn eftirvænting og gleði sem ríkti í þessum skemmtilega hópi, en þó var ekki laust við smá feimni og kvíða. Meðan nemendurnir unnu að skólaverkefnum í kennslustofunni sátu foreldar og hlustuðu á fræðslu skólastjóra um skólastarfið. Smellið hér til að skoða myndir...


12.05.10
Þriðjudaginn 11. maí opnuðu nemendur í olíumálunarvalhópi myndlistarsýningu þar sem sýndur er afrakstur vetrarins. 21 nemandi hefur í vetur undir leiðsögn Kristínar Andersen myndlistarkennara lært allt um tækni og aðferðir í olíumálun og er sýningin á verkum nemendanna opin í tvær vikur. 

Við opnunina voru reiddar fram veitingar sem nemendur í heimilisfræðival höfðu útbúið og nutu gestir þeirra. Hér eru myndir frá sýningunni...

 

28.04.10
Ræðulið Lindaskóla, þau Rut Guðnadóttir, Rúna Halldórsdóttir, Sigurður Kristinsson og Unnur Stefánsdóttir mættu Hagaskóla í lokaúrslitunum í MORGRON, mælsku- og rökræðukeppni grunnskóla Reykjavíkur og nágrennis.  Umræðuefni kvöldsins var „Nektardansbannið“ og var Lindaskóli á móti en Hagaskóli meðmæltur.  Ræðulið Lindaskóla stóð sig frábærlega og örfá stig skildu á milli liðanna, en Hagaskóli bar að lokum sigur úr býtum.

19.03.10
Myndir frá þemaviku Lindaskóla, Myndir 1 , Myndir 2 , Myndir 3 Nemendur heimsækja Latabæ

 

29.04.10
Gott gengi nemenda í LindaskólaNemendur í Lindaskóla höfðu ástæðu til að gleðjast saman vegna góðs gengis skólans í hinum ýmsu keppnum sem nemendur hafa tekið þátt í á undanförnum vikum. Lindaskóli átti fjóra nemendur í verðlaunasætum í stærðfræðikeppni 8.-10. bekkjar í grunnskólaum Kópavogs , skólinn komst einnig áfram í BEST norrænu stærðfræðikeppninni sem haldin er á árlega. Ræðulið skólans tók þátt í MORGRON, mælsku - og rökræðukeppni grunnskóla Reykjavíkur og nágrennis og keppti þar til úrslita. Lindskælingar unnu síðan skólahreysti á fimmtudag með miklum yfirburðum.

Það var því næg ástæða til að fagna sætum sigrum og var slegið upp grillveislu fyrir allan skólann tæplega 600 nemendur á skólalóðinni á föstudag. Nemendur sporðrenndu pylsum af bestu lyst undir dúndrandi tónlist sem hljómaði langar leiðir. Við óskum Lindaskóla innilega til hamingju með frábæran árangur.
Smellið hér til að skoða myndir...

09.03.10
Upplestrarkeppni nemenda í 7. bekk í grunnskólum Kópavogs var haldin í Salnum í Kópavogi 17. mars. Keppendur Lindaskóla voru Erna Björk Björgvinsdóttir og Ólöf Ragnarsdóttir en þær urðu hlutskarpastar í skólakeppni Lindaskóla sem fram fór þann 25. febrúar. Smellið hér til að skoða myndir...

10.02.10
9. og 10. bekkirnir hafa verið að kryfja mýs síðastliðna daga til að skoða hin ýmsu líffæri. Nemendur voru mjög áhugasamir þó að nokkrir hefðu orðið aðeins hvítari í framan en aðrir. Smellið hér til að skoða myndir...

 

07.04.10
Árshátíð unglingadeildar var haldin með miklum glæsibrag fimmtudaginn 25. mars í íþróttasal skólans.  Mættu nemendur í 8.-10. bekk í sínu fínasta pússi sem og kennarar skólans og fengu við komuna bleikrauðan sprite drykk.  Þema kvöldsins var „diskó og pönk“ þar sem leiklistarval skólans frumsýndi  „Lífið er dískó – ástin er pönk“  undir leikstjórn Eggerts Kaaber.  Íþróttasalurinn var allur settur í diskó og pönk búning með stærstu diskókúlu á landinu í loftinu, diskókóngi og pönkara búna til úr pappa upp á vegg, og öllum þeim miklu andstæðum sem diskóið og pönkið býður upp á í skreytingum.  Heimilisfræðivalið ásamt kennurum sínum sá um matinn sem samanstóð af kjúklingabringum í mango-chutney og karrý sósu borið fram með hrísgrjónum og nanbrauði.  Í eftirrétt var kókósbollusprengja með  sælgæti og ávöxtum.  Happdrættisvinningar voru dregnir út  m.a.  páskaegg og gjafabréf frá versluninni Levi´s og viljum við þakka þeim kærlega fyrir stuðninginn.  Tilnefningar voru kunngjörðar „brosið“, „hárið“, „augun“, „samlokan“, stuðboltinn“,  „afrekið“, „bjartasta vonin“, „týpan“, „íþróttafríkið“ o.s.frv.  Árshátíðarmyndbandið var frumsýnt við mikinn fögnuð viðstaddra og myndir af félagsstarfi nemenda rúlluðu á tjaldinu.  Síðan tók Sindri PM við og þeytti skífur til 23:30.  Mikil og góð stemming ríkti á meðal nemenda og voru þeir sjálfum sér og skólanum til mikils sóma.  Við þökkum fyrir frábært kvöld!

Hér eru myndir frá árshátíðinni:
Myndir 1 Myndir 2 Myndir 3

 

04.03.10
Nafnasamkeppni vegna nýútkomins íslenskuefnis fyrir 5. 6. og 7. bekk.

Lindaskóli stendur nú fyrir lestrar / stafsetningarátaki í 2. – 7. bekk sem er þróunarverkefni til þriggja ára. Eitt atriði í því er að við munum kenna nýtt heildstætt íslenskuefni í samvinnu við Skólavefinn í 5. 6. og 7. bekk. Í síðustu viku gafst nemendum okkar kostur á að taka þátt í nafnasamkeppni vegna þessara nýju bóka. Við val á nöfnum var staldrað við tillögur frá nemendum í 5. GB í Lindaskóla og unnið út frá þeim.
Í frétt frá Skólavefnum segir svo:
Yfirheiti verksins er Vanda málið þetta er smá orðaleikur og við vonum að ykkur lítist vel á þetta. Bækurnar f. 5. bekk heita Þetta er málið, 6. bekk: Ekki málið og 7. bekk Minnsta málið.
Við erum mjög ánægð með þetta og vonum að þetta veki lukku, þetta er þjált og þægilegt að okkar mati og ekki of formlegt.

Til hamingju 5. GB.
Smellið hér til að skoða myndir...

18.12.09
Nú er lokið 1. áfanga í þriggja ára þróunarverkefni Lindaskóla um lestrarátak í 2. – 7. bekk. Að þessu sinni tóku þátt nemendur í 2. – 7. bekk og foreldrar þeirra.  Nánari upplýsingar um einstaka bekki og þátttöku þeirra má lesa út úr töflunni.

22.01.10
Hér eru upplýsingar frá menntamálaráðherra um breytt fyrirkomulag innritunar grunnskólanemenda í framhaldsskóla á haustönn 2010.

22.01.10
Vinsamleg tilmæli til foreldra vegna sundkennslu, smellið hér

17.11.09
Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur nýverið gefið út reglugerð um miðlun og meðferð upplýsinga um nemendur í grunnskólum og rétt foreldra til aðgangs að upplýsingum um börn sín.

06.11.09
Heimili og skóli hafa gefið út nýjan bækling um einelti sem er sérstaklega ætlaður foreldrum. Einelti - góð ráð til foreldra

 

04.02.10
Í dag var hundraðdagahátíðin haldin hátíðleg í 1. bekk, því það eru liðnir 100 skóladagar af skólaárinu. 1. bekkingar gerðu sér glaðan dag með ýmsum hætti. Þeir bjuggu m.a. til skrautlega hatta og kramarhús sem þeir töldu í 100 stykki af góðgæti úr 10 skálum og borðuðu góðgætið með bestu lyst. Í lok dags fóru allir bekkirnir saman í göngu og hlustuðu á álfasögur.
Smellið hér til að skoða myndir.

12.01.10
Fyrir jól gerðu nemendur í 2. NS myndband með jólasögu þar sem þau settu ýmist inn texta og tónlist eða lásu söguna inn.  
Hér eru vefslóðir á myndböndin:
http://www.teachertube.com/viewVideo.php?video_id=154222&title=2__NS_3&ref=Olofbbhttp://www.teachertube.com/viewVideo.php?video_id=154220&title=2__NS_2&ref=Olofbb
http://www.teachertube.com/viewVideo.php?video_id=154217&title=2__NS&ref=Olofbb

18.12.09
Myndir frá ýmsum atburðum á menningardögum

Myndir frá jólaböllunum...
Myndir frá jólaballi unglingadeildar...
Myndir frá jólakaffihúsi Lindaskóla...
Myndir frá jólamat Lindaskóla…
Myndir sem teknar voru á jólasamstund...
Myndir frá opnun menningardaga ...
Nemendur í 4. bekk syngja 3 jólalög inn á myndbönd í tónmennt.
 


08.12.09
Nemendur í 1. til 4. bekk syngja inn á myndband í tónmennt.
Smellið hér til að skoða myndbandið...


 

28.10.09
Sætabrauðstími hjá 10. bekk
Hér eru myndir af nemendum baka kleinuhringi og snúða í bakstursvali.

25.11.09
3. bekkur fékk í heimsókn góða gesti frá slökkviliðinu. Heimsóknin er hluti eldvarnaátaks Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna í grunnskólum. Með sér höfðu slökkviliðsmennirnir sjúkrabíl og slökkviliðsbíl sem krakkarnir fengu að skoða. Börnin fengu líka bók með sögunni af Loga og Glóð og Brennu-Vargi. Hér má sjá myndir frá heimsókninni.

 

18.11.09
17. nóvember voru krakkarnir í 7. bekk að kryfja innyfli svína. Verkefnið er liður í námi þeirra um líkama mannsins. Með því að kryfja hjörtu, lungu, lifur og fleira úr svínunum fá nemendur tækifæri til að sjá líffæri sem nálgast mest að líkjast líffærum mannsins. Smellið hér til að skoða myndir...

 

10.11.09
Nemendur í öðrum bekk unnu verkefni tengt árstíðunum í upplýsingamennt í haust. Þeir notuðu myndir af Netinu og bjuggu til myndasögu um eina eða fleiri árstíðir.
Hér er hægt að skoðað myndasögurnar:
2. NS:
Smellið hér
2. MÁ:
Smellið hér

 

03.11.09
Samþætt verkefni í myndmennt og upplýsingatækni.
Nemendur í fjórða bekk unnu í október verkefni í myndvinnslu tengt franska listmálaranum Claude Monet. Verkefnið vinna nemendur í Paint.NET sem er ókeypis forrit. Þau völdu ljósmyndir af Netinu og breyttu á sex mismunandi vegu. Monet var einmitt þekktur fyrir að mála sömu fyrirmyndirnar í mismunandi ljósi og skugga og þá beint á strigann með hröðum strokum. Nemendur munu svo mála mynd í myndmenntatíma með sömu tækni og Monet notaði.  Sjá myndir nemenda.

10.09.09
Útprentun fyrir nemendur. Nemendur sem þurfa að prenta út heimaverkefni hér í skólanum þurfa framvegis að greiða 20 krónur fyrir hvert útprentað blað. Sama gildir um ljósritun á verkefnum og stundatöflum.

15.10.09
Hér eru myndir frá haustferðalagi 10. bekkinga.  Og hérna er ferðasagan.

22.10.09
6. flokkur karla keppti á handboltamóti á Selfossi um síðustu helgi. Þeir sem tóku heim gullið að þessu sinni voru HK-ingar og meðlimir þess liðs eru allir nemendur í 6. bekk Lindaskóla. Við óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn. Hér til hliðar má sjá mynd af þeim. Hér er svo stækkuð mynd af strákunum okkar...

19.10.09
Einn liður í skólastarfi Lindaskóla er að fylgjast með félagslegri stöðu nemenda og líðan þeirra í skólanum sem meðal annars er gert með því leggja fyrir tengslakannanir og spurningalista um líðan nemenda. Tengslakannanir eru lagðar fyrir tvisvar á ári en spurningalisti um líðan er lagður fyrir einu sinni á ári. Þessi vinna er hluti í eineltisáætlun Lindaskóla.

24.09.09
Hér eru myndir af fatnaði sem er til kaups ef óskað er eftir hér í Lindaskóla.  Eins og fram kom á innkaupalista nemenda í haust stóð að hægt væri að kaupa íþróttafatnað merktum skólanum. 

Vörurnar eru frá HENSON.  Við erum búin að fá sýnishorn hingað upp í skóla og geta foreldrar nú pantað á börn sín ef óskað er.  Eins létum við útbúa hettupeysu renndri að framan sem merkt er skólanum og stendur á bakinu á henni LINDÓ.  Hún er svört með hvítu letri.  Íþróttafatnaðurinn eru bláar stuttbuxur og bolurinn hvítur með bláu merki skólans.  Eins er hægt að nota bolinn einan og sér.  

Við erum með sýnishorn af öllum stærðum hér inn á skrifstofu skólans sem hægt er að máta ef menn eru ekki vissir um stærðina. 

Stærðirnar eru eftirfarandi:
Bolir 5/6 ára, 7/8 ára 9/10 ára, 11/12 ára og síðan er það small - medium- large
Stuttbuxur  22/24, 26/28, 30/32, 34/36, 38 /40
Hettupeysurnar koma í s-m-l-xl í barna og s-m-l-  fyrir eldri krakka.   Large í barna samsvarar 146 cm þannig að m væri 134 cm og s 128 cm og xl 158 cm síðan tekur við small í fullorðins sem 170 cm og upp úr.

Verðin eru eftirfarandi:
Bolir hvítir kr.  1.000
Stuttbuxur bláar kr,  1.500
Hettupeysur svartar kr.  4.000

Vinsamlega sendið póst á netfangið margreta@lindaskoli.is ef óskað er eftir að panta fatnað.  Eins verður að koma fram nafn barns og bekkur.

28.09.09
Forvarnardagur
2009 var haldinn í öllum 9. bekkjum landsins miðvikudaginn 30. september.
Dagurinn er helgaður nokkrum heillaráðum sem geta forðað börnum og unglingum frá fíkniefnum, ráðum sem eiga erindi við allar fjölskyldur í landinu. Íslenskar rannsóknir sýna að þeir unglingar sem verja minnst klukkustund á dag með fjölskyldum sínum eru síður líklegir til að hefja neyslu fíkniefna. Að sama skapi sýna niðurstöður að mun ólíklegra sé að ungmenni sem stunda íþróttir og annað skipulagt æskulýðsstarf, falli fyrir fíkniefnum. Í þriðja lagi sýna rannsóknirnar fram á að því lengur sem ungmenni bíða með að hefja áfengisneyslu, þeim mun ólíklegra er að þau neyti síðar fíkniefna. Nánari upplýsingar á
http://www.forvarnardagur.is/

24.09.09
Haustferð 9. bekkjar var farin mánudaginn 21. september. Ferðinni var heitið á Laugarvatn en fyrst voru Gullfoss og Geysir skoðaðir. Á Laugarvatni var gist í gömlu heimavistinni þar sem nú er rekið farfuglaheimili. Þar var vel tekið á móti bekknum og aðstaða öll til fyrirmyndar. Um kvöldið fóru nemendur í sundlaugardiskó og skemmtu sér konunglega. Eftir góðan en mislangan nætursvefn var lagt af stað heim en á heimleiðinni var Laugarvatnsheillir skoðaður. Veðrið var yndislegt svo og vel flestir nemendur bekkjarins eins og sjá má á meðfylgjandi myndum...

11.09.09
„Í skólanum, í skólanum er skemmtilegt að vera“

Fimmtudagskvöldið 10. september var haldið námskeið fyrir foreldra nemenda í 1.bekk. Bar námskeiðið yfirskriftina „Í skólanum, í skólanum er skemmtilegt að vera“. Námskeiðið var vel sótt og hlýddu foreldrar á fyrirlestra um lestrar- og stærðfræðikennslu og einstaklinginn sem er að byrja í skóla. Hjúkrunarfræðingur skólans kynnti sitt hlutverk sem og  formaður foreldrafélagsins. Foreldrar tóku þátt í einföldum ratleik til að kynnast skólahúsnæðinu og einnig var þeim boðið upp á léttan kvöldverð.

10.09.09
Námsefniskynningar voru haldnar  á eldra stigi  þriðjudagskvöldið 8. sept.  Umsjónarkennarar í 7.,9. og 10. bekk hittu foreldra inn í stofum og fóru yfir viðburði þessa skólaárs sem og ýmis hagnýt atriði sem gott er að vita í byrjum skólaárs. 
8.bekkjar kynningin fór þannig fram að foreldrum var boðið á sal þar sem skólastjóri og deildarstjóri eldra stigs kynntu ýmis mál er varðar unglingastigið,  formaður foreldrafélagsins og forsvarsmenn félagsmiðstöðvarinnar Jemen kynntu einnig starfsemi sína.  Að því loknu kom sálfræðingur skólans og ræddi við foreldra um samskipti foreldra og unglinga.  Lindaskóli bauð síðan upp á léttan kvöldverð fyrir foreldra barna í 8. bekk.  Umsjónarkennarar tóku síðan við inn í stofum þar sem farið var yfir ýmis hagnýt atriði.
Mjög góð mæting var á þessar námsefniskynningar og þökkum við foreldrum fyrir gott kvöld. Hérna eru myndir.

11.09.09
Námsefniskynning var haldin hjá 1. – 6. bekk miðvikudaginn 9. september. Mjög vel var mætt af foreldrum og fengu þeir hin ýmsu verkefni að glíma við. Nemendurnir stóðu sig með stakri prýði í að leiðbeina foreldrunum og höfðu allir gaman af. Vel gekk að fá bekkjarfulltrúa í öllum bekkjum og það er gott til þess að vita að foreldrar eru meðvitaðir um mikilvægi góðs bekkjarstarfs.
Hér eru myndir frá námsefniskynningunni...

24.08.09
Skólinn er byrjaður eftir sumarfrí og óhætt að segja að nemendur og kennarar hafi komið vel undan sumrinu. Að venju ríkti mikil eftirvænting hjá nemendum í fyrsta bekk að hefja skólagönguna og bjóðum við þau sérstaklega velkomin í skólann.
Smellið hér til að skoða myndir...

21.08.09
Nú hefur verið sett hér inn á síðuna skýrsla um sjálfsmat sem unnin var skólaárið 2008 – 2009. Hún fjallar um sýn foreldra um hvað er „Góður skóli“.
Smellið á "Handbók" hér fyrir ofan og þar er skýrslan undir "Sjálfsmat Lindaskóla" / "Aðgerðaáætlun vegna foreldra 2009".

 

10.09.09
Námsefniskynningar voru haldnar  á eldra stigi  þriðjudagskvöldið 8. september.  Umsjónarkennarar í 7.,9. og 10. bekk hittu foreldra inn í stofum og fóru yfir viðburði þessa skólaárs sem og ýmis hagnýt atriði sem gott er að vita í byrjum skólaárs. 
8.bekkjar kynningin var með öðru móti hér í Lindaskóla.  Foreldrum var boðið að koma á sal þar sem skólastjóri og síðan deildarstjóri eldra stigs kynntu ýmis mál er varðar unglingastigið,  formaður foreldrafélagsins og forsvarsmenn félagsmiðstöðvarinnar Jemen kynntu einnig starfsemi sína.  Að því loknu kom sálfræðingur skólans og ræddi við foreldra um samskipti foreldra og unglinga.  Lindaskóli bauð síðan upp á léttan kvöldverð fyrir foreldra barna í 8. bekk.  Umsjónarkennarar tóku síðan við inn í stofum þar sem farið var yfir ýmis hagnýt atriði.
Mjög góð mæting var á þessar námsefniskynningar og þökkum við foreldrum fyrir gott kvöld. Hérna eru myndir.