Fréttir 2008-2009

5.06.09
Útskrift 10. bekkjar Lindaskóla fór fram fimmtudagskvöldið 4. júní. Matsalur skólans var í hátíðabúningi og allur hinn glæsilegasti. Foreldrum 10. bekkjar, útskriftarnemum og kennurum skólans var boðið til veislunnar. Athöfnin hófst kl. 18 með ávarpi skólastjóra. Nokkrir aðrir tóku til máls s.s. fulltrúi foreldra, fulltrúi nemenda og kennara skólans. Erna Hrönn Ólafsdóttir söngkona kom og söng tvö hressileg lög og kom mannskapnum til að syngja með. Hápunktur kvöldsins var sjálf einkunnaafhendingin og í kjölfarið fylgdi verðlaunaafhending til þeirra nemenda sem skarað hafa fram úr á einhverjum vettvangi. Eftir að henni lauk var borðað saman en foreldrar útskriftarnema sáu um að koma með veitingar á hlaðborð sem runnu ljúflega niður. Að lokum var komið að kveðjustundinni sem er alltaf hjartnæm fyrir nemendur og kennara. Starfsfólk Lindaskóla óskar útskriftarnemum velfarnaðar í framtíðinni. Smellið hér til að skoða myndir...

08.06.09
Vorhátíð Lindaskóla, Dals og Núps var haldin með glæsibrag föstudaginn 5. júní, strax að loknum skólaslitum Lindaskóla. Sannkölluð karnivalstemning var á skólalóðum Lindaskóla og Núps en margt var í boði. Hjálparsveit skáta í Kópavogi kom með klifurvegg, hoppukastalar voru settir upp, andlitsmálun var í boði, leikrit af leikhópnum Lottu var sýnt, krakkarnir í 9. bekk í Lindaskóla voru með veitingasölu og kökubasar, gröfur frá Kraftvélum voru í skólagörðunum og fengu krakkarnir að spreyta sig á þeim, mótorhjólalögga skoðaði hjólin hjá krökkunum og Daði Lárusson markmaður meistaraflokks FH í knattspyrnu stóð vaktina í markinu og fékk á sig skot frá krökkunum og varði sum skotin en önnur ekki.

Hátíðin heppnaðist mjög vel og er Foreldrafélögum skólanna og þeim foreldrum sem sáu um undirbúning hennar færðar bestu þakkir fyrir.
Smellið hér til að skoða myndir...

05.06.09
Í góða veðrinu í gær voru allir krakkarnir í Dægradvölinni úti að leika sér. Nestið var líka drukkið úti í góða veðrinu. Smellið hér til að skoða myndir...

04.06.09
Í dag fór fram Norræna skólahlaupið í skólanum. Nemendur í 1. – 7. bekk tóku þátt og var hlaupinn hringur í hverfinu sem var 1,25 kílómetri. Nemendur réðu svo sjálfir hversu marga hringi þeir hlupu og skráðu kennarar niður vegalengdina hjá hverjum og einum. Smellið hér til að skoða myndir...


04.06.09

Síðustu daga hafa nemendur verið úti við leik og störf. Margar stöðvar voru settar upp á skólalóðinni s.s.  hreystibraut, boðhlaup, fótbolti, stígvélaspark, víkingakubbar, snú snú, limbó, skotbolti, brennó og reiptog. Veðrið var okkur í hag og skemmtu sér allir hið besta.
Smellið hér til að skoða myndir...


04.06.09

Farið var með 7. bekk í vorferð á Laugarvatn miðvikudaginn 3. júní. Komið var við á leiðinni í Laugarvatnshelli, þar sem krakkarnir fengu fræðslu um hellinn og borðað var nesti. Af því loknu var farið með krakkana í sund á Laugarvatni og allir virtist skemmta sér vel enda var blíðskaparveður. Smellið hér til að skoða myndir...

03.06.09
Í dag fór 5. bekkur í hjólaferð niður í Elliðaárdal. Hjólað var frá skólanum sem leið liggur niður í Elliðaárdal, þar stoppað í góða stund og svo heim aftur. Ferðin gekki mjög vel og voru krakkarnir til fyrirmyndar, allir með hjálma og öryggisbúnað í lagi.

Smellið hér til að skoða myndir...

03.06.09
Fimmtudaginn 28. maí fór 5. bekkur í árvissa gróðursetningarferð upp við Guðmundarlund. Veðrið var því miður ekki eins og best verður á kosið en var mjög vel tekið á móti hópnum í Guðmundarlundi.  Eftir að hafa borðað nesti, leikið og fengið fræðslu um Guðmundarlund var haldið í skólareit Skógræktarfélags Kópavogs. Lindaskóli á þar merktan reit og þar plöntuðu krakkarnir um 120 plöntum.
Smellið hér til að skoða myndir...

29.05.09
Þann 27.maí fór 4. bekkur í vorferð. Ferðinni var heitið út á Garðskaga, þar sem að við fórum í fjöruna og fundum krabba, marflær, kuðunga, skeljar o.m.fl. Þaðan fórum við á Fræðasetrið í Sandgerði þar sem við skoðuðum sýnin okkar úr fjörunni undir víðsjá. Í Fræðasetrinu er safn ýmissa lífvera, jurta og lifandi dýra í ferskvatns-og sjóbúrum, auk steinasafns.
Smellið hér til að skoða myndir...

27.05.09
Í gær komu tilvonandi nemendur 1. bekkjar í heimsókn í skólann og fengu að hitta kennarann sinn og bekkjarsystkini. Mikil eftirvænting ríkti í hópnum og fengu börnin að heimsækja Dægradvölina og vinna skólaverkefni. Á meðan börnin voru í sínum bekkjum fengu foreldrarnir fræðslu um skólastarfið frá skólastjóra. Smellið hér til að skoða myndir...

14.05.09
Í dag fór fram hin árlega keppni milli útskriftarnemenda í 10. bekk og kennara. Keppt var í fótbolta og brennó og voru báðir leikir æsispennandi. Leikar fóru þannig að nemendur sigruðu kennara 3 – 1 í fótboltanum og einnig sigruðu nemendur brennó keppnina en þar munaði aðeins einu lífi sem höfðingi nemendaliðsins átti eftir.
Smellið hér til að skoða myndir...

29.05.09
Þann 27.maí fór 4. bekkur í vorferð. Ferðinni var heitið út á Garðskaga, þar sem að við fórum í fjöruna og fundum krabba, marflær, kuðunga, skeljar o.m.fl. Þaðan fórum við á Fræðasetrið í Sandgerði þar sem við skoðuðum sýnin okkar úr fjörunni undir víðsjá. Í Fræðasetrinu er safn ýmissa lífvera, jurta og lifandi dýra í ferskvatns-og sjóbúrum, auk steinasafns.
Smellið hér til að skoða myndir...

27.05.09
Í gær komu tilvonandi nemendur 1. bekkjar í heimsókn í skólann og fengu að hitta kennarann sinn og bekkjarsystkini. Mikil eftirvænting ríkti í hópnum og fengu börnin að heimsækja Dægradvölina og vinna skólaverkefni. Á meðan börnin voru í sínum bekkjum fengu foreldrarnir fræðslu um skólastarfið frá skólastjóra. Smellið hér til að skoða myndir...

18.05.09
Brekkusöngur.  Samstundin hjá 3. og 4. bekk flutt út og var brekkusöngur undir stjórn Ívars tónmenntakennara. Sungin voru fjörug sumarlög og rúsínan í pylsuendanum var íslenska Eurovision lagið „Is it true“ sem sungið var hástöfum.
Smellið hér til að skoða myndir...

Sami háttur var hafður á samstund hjá 1. og 2. bekk. Sungin voru fjörug sumarlög undir stjórn Ívars tónmenntakennara og að sjálfsögðu sungu börnin einnig Eurovisionlagið okkar sem sló í gegn í Moskvu um síðustu helgi.
Smellið hér til að skoða myndir...

18.05.09
Krakkarnir í 3. bekk fengu í síðustu viku heimsókn frá Skólahljómsveit Kópavogs. Össur, stjórnandi hljómsveitarinnar og Margrét, kennari við hljómsveitina, komu í heimsókn og fengu þau nokkra nemendur Lindaskóla sem eru í hljómsveitinni sér til aðstoðar. Mörg þeirra hljóðfæra sem hægt er að læra á voru kynnt fyrir krökkunum og fengu sumir einnig að spreyta sig og prófa hljóðfærin. Tilgangur kynningarinnar var að vekja athygli á því að um helgina stóð yfir innritun í hljómsveitina fyrir börn í 3. bekk. Smellið hér til að skoða myndir...

18.05.09
Í síðustu viku komu félagar úr Kiwanisklúbbnum Eldey í heimsókn í skólann og færðu þeir nemendum 1. bekkjar reiðhjólahjálma að gjöf. Hjúkrunarfræðingur skólans, hún Hulda Margrét, notaði tækifærið og fræddi börnin um nauðsyn þess að nota hjálmana og útskýrði fyrir þeim slysin sem geta orðið ef reiðhjólahjálmurinn er ekki notaður. Þeir félagar úr Eldey hvöttu börnin til að nota hjálmana þegar þau hjóla, fara á línuskauta og fara á hlaupabretti. Við tökum undir þau orð þeirra og hvetjum alla til að nota hjálmana sína, líka eldri nemendur.
Smellið hér til að skoða myndir...

 

08.05.09
Síðustu vikur hafa nemendur í fyrsta bekk verið að læra um íslenska fugla. Þau bjuggu til myndband um fuglana í upplýsingatækni bæði með tónlist og texta.
Hér er hægt að skoða myndböndin:

1. MÁ 1. IB 1. NS

06.05.09
Þann 6. maí fengum við góða heimsókn hingað í skólann.  Tónlistarmennirnir Jónas Ingimundarson og Peter Maté komu og spiluðu fjórhent á píanó fyrir alla nemendur í 7. – 10. bekk.  Krakkarnir höfðu gaman af og stóðu sig með prýði.  Við þökkum tónlistarmönnunum fyrir góða skemmtun.  Hér má sjá myndir af því...

06.05.09
Krakkarnir í 6. ÁJ að bökuðu pönnukökur í heimilisfræði. Í lok tímans gæddu krakkarnir sér svo á herlegheitunum. Smellið hér til að skoða myndir...

14.04.09
Stærðfræðikeppni Menntaskólans í Kópavogi var haldin
24. mars. Keppnin er haldin fyrir alla 8. ,9. og 10. bekkinga í Kópavogi.   Frá Lindaskóla tóku þátt vel á annan tug  nemenda. Nemendur frá okkur náðu 2. sæti bæði í 8. og  9. bekk og 5.-7. sæti í 10. bekk.

31.03.09
Lýðheilsustöð stendur árlega fyrir keppni fyrir reyklausa bekki.  Allir 7. og 8. bekkir geta tekið þátt svo fremi að enginn nemandi reyki. Allir okkar bekkir eru með í keppninni og eru vegleg verðlaun í boði. Reglulega eru einnig dregin út smærri verðlaun og datt 7. GB í lukkupottinn nýlega. Hver og einn nemandi fékk gjafabréf frá Skífunni að verðmæti 2500 krónur. Hér eru myndir...

 

16.04.09
Strumpaleikar hjá Tröllakoti
STRUMPALEIKAR er íþróttamót þar sem keppt er í bæði hefðbundnum og óhefðbundnum íþróttum. 

Smellið hér til að skoða myndir af strumpaleikum Tröllakots..
Smellið hér til að skoða myndir úr Dægradvöl..

14.04.09
Stærðfræðikeppni Menntaskólans í Kópavogi var haldin
24. mars. Keppnin er haldin fyrir alla 8. ,9. og 10. bekkinga í Kópavogi.   Frá Lindaskóla tóku þátt vel á annan tug  nemenda. Nemendur frá okkur náðu 2. sæti bæði í 8. og  9. bekk og 5.-7. sæti í 10. bekk.

31.03.09
Lýðheilsustöð stendur árlega fyrir keppni fyrir reyklausa bekki.  Allir 7. og 8. bekkir geta tekið þátt svo fremi að enginn nemandi reyki. Allir okkar bekkir eru með í keppninni og eru vegleg verðlaun í boði. Reglulega eru einnig dregin út smærri verðlaun og datt 7. GB í lukkupottinn nýlega. Hver og einn nemandi fékk gjafabréf frá Skífunni að verðmæti 2500 krónur. Hér eru myndir...

 

03.04.09
Árshátíð unglingadeildar var haldin með miklum glæsibrag fimmtudaginn 2. apríl.   Þema kvöldsins var Óskarinn og var íþróttahús skólans allt skreytt í anda þemans af skreytingarnefndinni okkar sem í voru nemendur og kennarar.  Heimilisfræðivalið okkar sá um matinn sem samanstóð af osta - og beikonfylltum kjúklingabringum með salsa –og rjómaostasósu ásamt tortilla flögum og salati.  Í eftirrétt var bragðarefur með jarðaberjum, trompi og fleiru.  Leiklistarval skólans frumsýndi söngleikinn Grease við mikinn fögnuð áheyrenda.  Tilnefningar skólans voru kunngjörðar s.s. brosið, íþróttafríkið, stuðboltinn, krúttið, týpan, bjartasta vonin og fleira og fleira ásamt ungfrú og herra hvers árgangs.  Eftir að borðhaldi lauk stigu Ingó og veðurguðirnir á svið og skemmtu unglingunum okkar það sem eftir lifði kvöldsins.  Krakkarnir skemmtu sér konunglega og dönsuðu og sungu eins og þau ættu lífið að leysa.  Það voru þreyttir, sveittir en ánægðir unglingar sem yfigáfu skólann að ballinu loknu.  Árshátíðin gekk framar vonum og stóðu krakkarnir sig eins og hetjur.  Hér eru myndir frá árshátíðinni...

24.03.09
Stefna Lindaskóla gegn einelti  - Fyrirbyggjandi aðgerðir
Tvisvar á hverju skólaári eru kannanir lagðar fyrir um líðan nemenda í Lindaskóla. Fyrir jól er tengslakönnun lögð fyrir og eftir jól er lögð fyrir könnun um líðan nemenda í Lindaskóla auk þess er tengslakönnun endurtekin í 1.-3. bekk. Námsráðgjafi skólans hefur umsjón með þessum könnunum og umsjónarkennarar vinna með niðurstöðurnar í sínum bekkjum. Ef upplýsingar um einelti koma fram í niðurstöðum vinnur umsjónarkennarar málið eftir stefnu Lindaskóla gegn einelti. Minnum á að hægt er að skoða eineltisstefnu Lindaskóla í handbók.

15.04.09
Tveir hópar í 10. bekk skiluðu verkefni í náttúrufræði í formi heimasíðu. Hér má skoða þær:

http://hradallinn.blogcentral.is          http://blogcentral.is/planetur

 

18.03.09
Þemavika
Nemendur hafa verið önnum kafnir við ýmis  þemaverkefni,  hér má sjá myndir frá fyrsta degi þemaviku,  frá öðrum degi frá þriðja degi, frá fjórða degi og  frá fimmta og síðasta degi þemaviku.

24.03.09
F jölskylduhátíð Lindaskóla var haldin 20. mars. Á hátíðinni sýndu nemendur verkefni sem þeir unnu í tengslum við þemaviku og buðu upp á skemmtiatriði í íþróttasal skólans. Smellið hér til að skoða myndir frá hátíðinni.


 
Söngleikurinn var svo endurfluttur í dag fyrir nemendur í 1. – 7. bekk við góðar undirtektir áhorfenda. Hér eru myndir frá leiksýningu fyrir 1. 7. bekk...

27.03.09
Upplestrarkeppni 7. bekkja grunnskóla Kópavogs fór fram í Salnum 24. mars

Fulltrúar Lindaskóla voru Arnar Ingi Ingason 7. GB og Magdalena Anna Torfadóttir 7. ÞS. Þau stóðu sig bæði ákaflega vel og voru skólanum til mikils sóma.

Úrslit urðu þessi:
1.
       Sindri Pétursson  - Snælandsskóla
2.
       Magdalena Anna Torfadóttir – Lindaskóla
3.
       Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir – Kópavogsskóla 

Við óskum Magdalenu innilega til hamingju með annað sætið. Hér eru myndir frá lokakeppninni...

Hér eru myndir frá keppninni í Lindaskóla...

 

20.03.09
Nemendur syngja sjómannalög
Í tilefni af þemaviku um hafið sungu nemendur í 1. til 6. bekk þrjú sjómannalög sem voru hljóðrituð og tekin upp á myndband.
Smellið hér, 1. og 2. bekkur syngja Kátir voru karlar
Smellið hér, 3. og 4. bekkur syngja Síldarvalsinn
Smellið hér, 5. og 6. bekkur syngja lagið Stebbi og Lína

10.03.09
Fréttir úr tónmenntastofunni

Í síðasta mánuði lærðu nemendur um Kína og kínverska tónlist í tónmennt. Í kjölfarið á því æfðu nemendur í  4. bekk lag í kínverskum stíl sem hægt er að  hlusta og horfa á hér.

   

 

02.03.09
Nemendur í 8. bekk hafa í vetur unnið með stafræna myndvinnslu í myndmennt og upplýsingatækni.
Verkefnið unnu nemendur í teikniforritinu Paint.NET sem er ókeypis forrit. Þau völdu ljósmyndir af Netinu þar sem þau síðan breyttu ljósi og skugga á sex mismunandi vegu. Nemendur stóðu sig með prýði í þessu verkefni og margar myndirnar eru listilega unnar.
Hægt er að skoða myndirnar hér:

8. ÞS: http://olofb.jalbum.net/8.%20SÞ/
8. BB: http://jalbum.net/browse/user/album/119526/

16.03.09
Nemendur í 3. bekk hafa verið að vinna verkefni í samfélagsfræði sem heitir ,,Komdu og skoðaðu himingeiminn". Lagt var upp með að krakkarnir myndu vinna með fjölbreytt og sjálfstæð vinnubrögð. Þeim var skipt í hópa og unnu 2-3 saman með eina reikistjörnu. Í tölvum gerðu þau power-point sýningu, einnig gerðu þau risastóra reikistjörnu úr pappamassa sem þau síðan hengdu upp í stofunni sinni og myndar þar sólkerfið. Þau unnu harmonikkubók um sína reikistjörnu en heimildir í hana fann hver og einn í bókum. Krökkunum fannst þetta mjög skemmtileg og spennandi vinna og þau voru dugleg og áhugasöm.

Smellið hér til
að skoða myndir...

16.03.09
Þemaverkefni um Leif Eiríksson
Nemendur í 5. bekk hafa nýlokið við þemaverkefni um Leif Eiríksson og eins og sjá má á meðfylgjandi myndum þá er afraksturinn glæsilegur.
Smellið hér til að skoða myndirnar...

16.03.09
Hér eru myndir sem teknar voru þegar 7. bekkingar fóru á Reyki í Hrútafirði.
Smellið hér til að skoða myndirnar...

16.03.09
Í síðustu viku var haldin samstund hjá eldra stigi og hér eru nokkrar myndir frá samstundinni...

16.03.09
Tónlist fyrir alla. Fimmtudaginn 12. mars fengum við skemmtilega gesti í heimsókn í skólann. Þær Guðrún Ásmundsdóttir leikkona og Pamela De Sensi flautuleikari komu í heimsókn til 1. – 4. bekkjar og sögðu söguna af Paradísarfuglinum og kynntu flautur fyrir krökkunum. 5. – 7. bekkur fékk þau Örn Magnússon tónlistarmann og Mörtu Halldórsdóttur söngkonu í heimsókn með gömlu íslensku hljóðfærin og þjóðlögin og kynntu þau  þjóðararfinn fyrir krökkunum.

Smellið hér til að skoða myndir...

06.03.09
Nemendur í 4. bekk hafa í vetur unnið verkefni tengt franska listmálaranum Claude Monet. Verkefnið er samvinnuverkefni í myndmennt og upplýsingatækni þar sem stafræn myndvinnsla er notuð til að ná mismunandi áhrifum birtu og skugga í ljósmyndum. Á sama hátt og Monet málaði oft myndraðir af sömu fyrirmyndinni til að sýna áhrif birtu og lita.
Nemendur unnu verkefnið með ljósmynd sem þau völdu af Netinu og breyttu ljósi, skugga og áhrifum á sex mismunandi vegu. Í myndmenntatíma máluðu þau síðan mynd þar sem þau notuðu sömu tækni og Monet.
Hægt að skoða verkefni nemenda hér.

26.02.09
Á öskudaginn héldu nemendur í 10. bekk öskudagsskemmtun fyrir 1. – 4. bekk, sem var liður í fjáröflun fyrir útskriftarferð 10.bekkjar.  Á skemmtuninni var boðið upp á popp og safa, kötturinn sleginn úr tunnunni, farið var í leiki og dansað. Veittar voru viðurkenningar fyrir skemmtilegustu búningana.
Hér eru myndir...

26.02.09
Fyrsta knattspyrnumót 7.
bekkja frá skólum austan Kópavogslækjar var haldið 20. febrúar í Kórnum. Allir skólarnir mættu með lið, ýmist í stráka-, stelpna- eða blönduðum flokki, nema Hörðuvallaskóli sem var á Reykjum.  Skemmst er frá því að segja að Smáraskóli vann stúlknakeppnina og Lindaskóli drengjakeppnina.
Gríðarlega góð tilþrif sáust hjá báðum kynjum og vonandi er hægt að gera þetta að árlegum viðburði.

20.02.09
Einn liður í samfélags- og náttúrufræði 3.bekkjar í vetur er nám um lífið á Íslandi fyrr og nú. Verkefnið var fléttað inn í söguramma með bókinni "Blómin á þakinu" eftir Ingibjörgu Sigurðardóttir. Með því móti er hægt að nálgast viðfangsefnið frá mörgum sjónarhornum. Börnin sköpuðu sína eigin Gunnjónu, bæinn hennar, dýrin og matjurtagarðinn. Þau sömdu ljóð um sveit og borg og teiknuðu margar fallegar myndir. Skemmtileg vinna og góðar umræður.
Hér er hægt að skoða verkefni nemenda...

30.01.09
Í dag var 100 daga hátíð hjá 1. bekk. Þá er haldið upp á það að börnin eru búin að vera 100 daga í skólanum. Börnin útbjuggu kramarhús og töldu 10 stk. af 10 tegundum af miklu hlaðborði sem samanstóð af mishollu góðgæti. Í tilefni dagsins var einnig horft á kvikmynd um Benedikt búálf og vakti myndin mikla gleði. Dagurinn var skemmtilegur eins og sjá má á eftirfarandi myndum…

10.12.08
Nemendur í 9. bekk Lindaskóla taka þátt í norrænu BEST stærðfræðikeppninni í vetur. Þetta er bekkjarkeppni og vinna nemendur án allrar aðstoðar frá kennurum. Verkefnin fáum við send frá Noregi og fá nemendur 80 mínútur til að leysa þau í sameiningu. Fyrsti hluti keppninnar eru tvær verkefnalotur, eftir þær kemur í ljós hvaða bekkir komast í undanúrslit. Í apríl næstkomandi keppa stigahæstu bekkirnir og fer vinningshafinn sem fulltrúi Íslands til Finnlands í lokakeppnina.
Hér eru myndir....

13.02.09
Skólahreysti – skólahreysti - skólahreysti

Lindaskóli tók þátt í skólahreysti 12. febrúar.
Krakkarnir stóðu sig vel og lentu í 2. sæti á eftir Salaskóla og munaði aðeins 0,5 stigi. Salaskóli fékk 60 stig en við fengum 59,5. Minnsti munur sem gat orðið.

Keppendur frá Lindaskóla voru:
Rakel Másdóttir               10. bekk og keppti hún í armbeygjum og hreystigripi.
Karl Kristjánsson              9. bekk og keppti hann í upphífingum og dýfum.
Hlynur Már Heimisson  10. bekk og keppti hann í hraðabrautinni.
Salvör Rafnsdóttir           10. bekk og keppti hún í hraðabrautinni.

Þetta var mjög skemmtilegur dagur og sló Lindaskóli í gegn -  með langöflugasta stuðningsliðið.
Hér eru myndir frá keppninni...

13.02.09
Upplestrarkeppni 7. bekkjar  Lindaskóla fór fram fimmtudaginn 12. Febrúar.

Keppendur voru:
Magdalena  Anna Torfadóttir  7. ÞS
Arnar Ingi Ingason  7. GB

Helga Katrín Jónsdóttir  7. AB
Ingimar  Logi Guðlaugsson  7. AB
Halldóra Tinna Guðjónsdóttir 7. GB
Ingunn Jónasdóttir Hlíðberg  7. AB
Logi Haraldsson  7. ÞS
Berglind Einarsdóttir  7. ÞS
Ester Rós Brynjarsdóttir  7. GB

Valdir voru tveir keppendur og einn til vara sem munu keppa fyrir hönd Lindaskóla  í úrslitakeppni Kópavogs í Salnum þann 24. mars n.k.

Sigurverarar eru  Arnar Ingi Ingason og Magdalena Anna Torfadóttir – varamaður er Halldóra Tinna Guðjónsdóttir. 

Dómnefnd skipuðu Anna Pála Gísladóttir, Linda Arilíusdóttir, Ragnheiður Eggertsdóttir

Hér eru myndir frá upplestrakeppninni...

 

17.02.09
Nemendur 7. bekkjar fóru í  forvarnarfræðslu á vegum Maríta á Íslandi, lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.    Þar var lögð áhersla á jákvæðar lausnir á vandamálum sem geta komið upp á unglingsárunum.  Sýnd var mynd sem heitir „Sims- sagan af Jónsa – allir hinir mega það“.  Þriðjudaginn 17. febrúar milli kl. 16:30 – 19:00 verður fræðsla fyrir foreldra barna í 7. bekk þar sem farið verður yfir fyrirhugaða Reykjaferð og í kjölfarið koma sömu aðilar og sáu um forvarnafræðsluna fyrir 7. bekk og upplýsa foreldra um hvað var rætt um við börnin og hugsanlegar leiðir til að koma í veg fyrir að þau komist í kynni við vímuefni.
Einnig fóru nemendur í 10. bekk í fræðslu á vegum sömu aðila.  Nefnist sú fræðsla „Eftirfylgni.“

06.02.09
Í dag var dagur leikskólans haldinn hátíðlegur. Af því tilefni komu börn frá leikskólunum Dal og Núpi í heimsókn til 1. bekkjar í Lindaskóla og sungu fyrir börnin úti á skólalóðinni.
Hér er hægt að skoða myndir...

05.02.09
SAFT
( samfélag, fjölskylda og tækni) var með fræðslufund fyrir foreldra barna í 5.-10. bekk í matsal skólans föstudaginn 6. febrúar. 
Á fyrirlestrinum var farið í gegnum svipaða hluti og farið verður í með nemendum 5.-10. bekkjar s.s. bloggsíður, tölfræðilegar upplýsingar, msn einelti, netið, friðhelgi einkalífsins, nettælingu og netvini.  Einnig var rætt um hvernig foreldrar sjá netnotkun barnanna sinna og hvernig börnin upplifa netnotkun sína og samskipti við foreldra. 

19.12.08
Jólaball unglingadeildar var haldið fimmtudagskvöldið 18. desember milli klukkan 19:00 – 23:30 með miklum glæsibrag. Matsalur skólans var allur skreyttur af skreytingarnefnd fyrr um daginn og logaði arineldur á einum vegg skólans (reyndar sýnt í gegnum skjávarpa). Byrjað var á því að borða hangikjöt með öllu tilheyrandi og í eftirrétt var ís. Eftir það tóku fulltrúar okkar í söngvakeppni grunnskóla Kópavogs lagið. Dansað var í kringum jólatréð og þar á eftir var „diskóið“ sett af stað og skemmtu nemendur sér konunglega og var dansgólfið verulega vel nýtt þetta kvöld. Hér eru myndir frá jólaballinu...

18.12.0
Í dag var öllum nemendum í 1. – 7. bekk boðið í jólamat. Á boðstólum var hangikjöt og meðlæti að þjóðlegum hætti. Í kvöld verður nemendum í 8. – 10. bekk boðið í samskonar veislu á jólaballi unglingadeildarinnar. Hér eru myndir frá jólamatnum...

18.12.08
Í dag kom Hjálmar Einarsson, sonur Einars Hákonarsonar listmálara, í heimsókn í skólann og var hann með leiðsögn á sýningu föður síns. Krakkarnir voru áhugasamir að skoða myndirnar og nýttu sér margir leiðsögnina. Hér er hægt að skoða myndir frá listsýningunni...

18.12.08
Þann 18. desember voru hinar árlegu föndursmiðjur hjá 8. -10. bekk. Smiðjurnar voru fjórar og völdu unglingarnir sér hvaða smiðjur þeir vildu vera í. Ein var hin sívinsæla smiðja að búa til nammikrans og þar fóru hvorki meira né minna en 2,5 kg af sælgæti á hvern hring og voru nemendur ekki í vandræðum að hníta sælgætið á hringana um leið og þeir laumuðu einum og einum mola upp í sig. Þreyttir unglingar fóru inn í video smiðjuna þar sem horft var á eina sígilda jólamynd. Þriðja smiðjan var föndursmiðja þar sem nemendur fengu að láta listhneigðina njóta sín og sýndu þeir og sönnuðu að það vantar ekkert upp á sköpunargleðina hjá okkar fólki. Fjórða og síðasta smiðjan en alls ekki sú sísta var kaffihúsið okkar. Þar stóð enskukennarinn sveittur við að baka vöfflur ofan í mannskapinn sem rann ansi ljúflega niður ásamt kakói. Þar sátu nemendur og gæddu sér á góðgætinu við kertaljós, jólatónlist og sumir spiluðu á spil. Smiðjurnar tókust mjög vel og má sjá myndir af unglingunum okkar hér...

17.12.08
Í dag var jólasamstund haldin fyrir alla nemendur skólans. Dagskráin var fjölbreytt að vanda og má þar nefna skemmtiatriði frá 7. GB, söngatriði frá 2. bekk, dansatriði frá stúlkum í 5. – 9. bekk ásamt dansherrum þeirra, trompetleik frá nemendum í 7. bekk, tvö jólalög frá Muffins og The No Name Band, tvö dansatriði frá kennurum, dansatriði frá 9. BP og helgileik sem nemendur í 6. bekk fluttu. Auk þess voru sungin nokkur jólalög við undirleik kennarahljómsveitarinnar sem í eru Edda Kristín, Kristinn og Ívar og spilaði hann Gunnar Smári, sem útskrifaðist í vor, á trommurnar. Hér er hægt að skoða myndir frá jólasamstundinni...

15.12.08
Nemendur í 1. til 4. bekk syngja og leika á hljóðfæri
Í tilefni af menningardögum Lindaskóla þá hafa nemendur í 1. til 4. bekk sungið og leikið á hljóðfæri inn á fjögur myndskeið og er hægt að hlusta og horfa á afraksturinn með því að smella hér…

11.12.08
Í dag fóru krakkarnir í 7. AB í heimsókn í 2. bekk og hjálpuðu til við jólaföndrið eins og sjá má á þessum myndum.

09.12.08
8. desember fóru allir 7. bekkirnir í Smáralind og settu pakka undir jólatréð. Þetta árið var sú ákvörðun tekin að vera ekki með pakka á litlu jólunum heldur kaupa gjafir sem Rauði krossinn og Mæðrastyrksnefnd sjá um að afhenda þeim börnum sem minna mega sín.  Smellið hér til að skoða myndir...

05.12.08
Hinn árlegi laufabrauðsdagur foreldrafélagsins fór fram 29. nóv. Að venju var vel mætt og var laufabrauð steikt undir vaskri stjórn röggsamra foreldra. Smellið hér til að skoða myndir...

04.12.08
Á aðventunni tilheyrir að baka fyrir jólin og hafa nemendur í 5. bekk verið að baka og skreyta piparkökur í heimilisfræði. Hér er hægt að skoða myndir

24.11.08
Í dag var byrjað að jólaföndra í Dægradvölinni og eru börnin að skreyta skó, sem þau komu með að heiman, fyrir jólasveinana. Smellið hér til að skoða myndir...

02.12.08
10. bekkur fór nýverið í ferð með skólaskipinu Dröfn. Sjávarútvegsráðuneytið stendur fyrir rekstri skipsins en markmiðið er bjóða elstu nemendum grunnskólanna upp á fræðslu í sjóvinnu og sjávarrannsóknum. Í hverri siglingu fá nemendur að kynnast stjórn- og vélbúnaði skipsins, sjá hvernig trollinu er kastað og dregið inn og gera að fiskinum sem kemur í veiðarfærin. Um borð í hverri ferð er líffræðingur frá Hafrannsóknastofnun sem kynnir nemendum vistkerfi hafsins, sjávarlífverur og líffræði þeirra. Einnig er hlutverki Hafrannsóknastofnunarinnar í fiskveiðiráðgjöf og rannsóknum á lífríki hafsins gerð skil. Hér er hægt að skoða myndir...

01.12.08
Nýlega voru nemendum okkar sem eru í umhverfisnefndinni afhentar plöntur sem starfsfólk Toyota ræktaði í sérstökum umhverfismánuði fyrirtækisins. Starfsfólk Toyota ákvað að færa Lindaskóla plönturnar þar sem Lindaskóli er þátttakandi í Grænfánanum. Alls voru þetta 17 plöntur og var þeim dreift í alla bekki í 3. – 7. bekk og á fleiri staði í skólanum. Mikil prýði er að þeim og er vonandi að nemendum og starfsfólki Lindaskóla takist að láta þær dafna jafn vel og þær gerðu í höndum starfsfólks Toyota. Hér er hægt að skoða myndir...
Hérna má lesa frásögnina á síðu Toyota

21.11.08
Hin árlega sveitakeppni í skák milli grunnskóla í Kópavogi fór fram föstudaginn 14. nóvember í Salaskóla. Óvenju mikil þátttaka var og kepptu 18 lið í yngri flokki, 1.-7. bekk og 9 lið í eldri flokki, 8. -10. bekk. Liðin komu frá sjö skólum og sendi Lindaskóli þrjár sveitir til keppninnar, eina í eldri flokki og tvær í yngri. Eldri sveitin, skipuð þeim Andra Steini, Arnóri, Elvari og Óskari í 10. bekk, lenti í þriðja sæti í sínum aldursflokki. Yngri sveitirnar voru tvær, önnur var skipuð þeim Andra Stefáni, Bjarka Þór, Benjamín Gísla og Árna Gunnari í 7. bekk og lentu þeirra sveit  í öðru sæti í sínum aldursflokki. Hin sveitin var skipuð þeim Loga, Hugni Sæ, Bjarna og Marteini í 4.-7. bekk og stóðu þeir sig einnig með ágætum.

22.10.08
Hér eru myndir sem Ólöf Birna Björnsdóttir kennari tók af nemendum í útivist þegar fyrsti snjórinn féll til jarðar á þessu skólaári.

18.09.08
Námsefniskynning fyrir foreldra barna í 1. – 6. bekk var haldin miðvikudaginn 17. september. Eins og ávallt var mæting foreldra mjög góð og kunnum við öllum þeim sem lögðu leið sína í skólann bestu þakkir fyrir.  Smellið hér til að skoða myndir.

 

10.11.08
Föstudaginn 7. nóvember  voru nemendur í 7. bekk að kryfja svín í skólanum. Verkefnið tengist náttúrufræði, en í vetur er nemendur í 7. bekk að læra um líkama mannsins. Með því að kryfja svín komust nemendur næst því að sjá hvernig líffæri mannsins líta út.
Lang flestum fannst verkefnið áhugavert og skemmtilegt þó svo að lyktin væri kannski ekkert sérstök. Hér er hægt að skoða myndir frá krufningunni...

07.11.08
Krakkarnir í 3.bekk fóru í heimsókn í Mjólkursamsöluna í Reykjavík. Þar fengu þau leiðsögn og fræðslu og höfðum gaman af. Þau fengu hvíta sloppa, húfu og skóhlífar til að vera í og sáu stóru tankana sem mjólkin er geymd í, allar leiðslurnar sem mjólkin fer eftir og salinn þar sem mjólkin er sett á fernur. Einnig fengu þau að fara inn í risastóra ískælinn en þar er 30 stiga frost og voru því ekki lengi þar inni. Inni í Mjólkursamsölunni var síðan skemmtilegur töframaður sem þau heilluðust mjög af.
Í lokin fengu þau mjólkurglas, kleinu og jólaíspinna. :-)
Hér er hægt að skoða myndir frá ferðinni...

12.11.08
Kennaranemarnir  Einar, Harpa og Stefán eru nú í heimsókn í 7. bekk. Þau eru öll á 1. ári í fjarnámi við Menntvísindasvið H.Í.
Hér eru nokkrar myndir af þeim og krökkunum í 7. bekk.

07.11.08
Miðvikudaginn fyrir vetrarfrí var haldin furðufataskemmtun fyrir þá bekki sem náðu góðum árangri í Göngum í skólann verkefninu. Hér eru myndir...

15.10.08
Lengd viðvera fatlaðra nemenda
Frístundaheimili Félagsþjónustunnar er fyrir fatlaða nemendur í 5. til 10. bekk grunnskóla Kópavogs sem eiga lögheimili í kópavogi.
Haustið 2008 tekur/tók til starfa frístundaheimili fyrir fatlaða nemendur í grunnskólum Kópavogs og er því ætlað að taka við hlutverki Dægradvalar að loknum 4. bekk. Smellið hér til að lesa meira

08.10.08
Landsmót Samfés var haldið í Reykjanesbæ um síðustu helgi. Landsmótið er viðburður þar sem fulltrúar nemendaráða víðs vegar að af landinu koma saman til smiðjuvinnu. 311 þátttakendur voru á Landsmótinu og voru 20 mismunandi smiðjur í boði, íþróttir, margskonar list, heimilisiðnaður, útivist og gönguferðir , umræður, fundarseta og skipulagning.
Hér eru fulltrúarnir Sindri Benediktsson úr Kjarnanum og Andri Steinn Hilmarsson úr Jemen en þeir hlutu kosningu í ungmennaráð Samfés.

15.09.08
Ungmenni frá austur Grænlandi í heimsókn í Lindaskóla
Í september bauð Kópavogsbær  hópi ungmenna frá austur Grænlandi í heimsókn til þriggja skóla í bænum, Lindaskóla, Salaskóla og Vatnsendaskóla. Aðalmarkmið heimsóknarinnar var að börnin læri sund og kynnist íslenskum börnum og nýjum aðstæðum.   Smellið hér til að skoða myndir

16.09.08
Í samræmi við þróunarverkefnið í 1. – 4. bekk hafa nemendur í 3. bekk verið duglegir við að fara í gönguferðir í nágrenni skólans og hverfisins. Síðastliðinn fimmtudag fór árgangurinn í gönguferð með kennurunum sínum niður að Kópavogslæk og hér má sjá myndir frá gönguferðinni.

18.09.08
Sjálfsmat Lindaskóla
Á yfirstandandi skólaári er unnið að aðgerðaráætlun vegna kennara. Áætlunina er að finna í Handbók / Sjálfsmat Lindaskóla / Aðgerðaáætlun vegna kennara 2008.